Sautján ára strákur tryggði Blikum jafntefli á móti KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2017 22:30 Vísir/Anton
Breiðablik og KR gerðu 1-1 jafntefli í Bose mótinu í Egilshöllinni í kvöld en Blikar jöfnuðu undir lokin. Jafnteflið tryggði Blikum sigur í leiknum og sæti í úrslitaleiknum. Björgvin Stefánsson kom KR-ingum í 1-0 í fyrri hálfleik og það leit lengi vel út að það mark myndi tryggja Vesturbæjarliðinu sigurinn. Hinn sautján ára gamli Kolbeinn Þórðarson var hinsvegar á öðru máli en hann jafnaði metin rétt fyrir leikslok. Björgvin kom til KR-inga á dögunum en hann fór á kostum með Haukum í Inkasso-deildinni síðasta sumar þar sem hann skoraði 14 mörk í 19 leikjum. Hann á aftur á móti ennþá eftir að sanna sig í Pepsi-deildinni. Blikar unnu 8-1 sigur á Víkingum og KR-ingar hefðu því þurft að vinna mjög stórt til að taka af þeim efsta sætið. Breiðablik og Stjarnan munu spila til úrslita um Bose bikarinn en KR mætir Fjölni í leiknum um þriðja sætið. Markið hjá Vestbæjarliðinu í kvöld var reyndar af skrautlegri gerðinni. Björgvin Stefánsson fékk þá boltann á silfurfati í teignum eftir að Pálmi Rafn Pálmason vann boltann af sofandi varnarmanni Blika. Markið kom á 25. mínútu leiksins. Kolbeinn Þórðarson var hinsvegar réttur maður á réttum stað undir lokin og kom boltanum yfir marklínuna af stuttu færi. Blikar höfðu pressað mikið á lokamínútunum og markið var búið að liggja í loftinu.
Íslenski boltinn Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ Enski boltinn Fleiri fréttir Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Sjá meira