Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. október 2026 07:02 Manchester United steinlá á heimavelli á móti Bournemouth í gær og hefur nú leikið átta leiki í röð án sigurs. EPA/GARY OAKLEY Gary Neville lét leikmenn Manchester United heyra það eftir skellinn á móti Bournemouth á Old Trafford í gær en fann til með knattspyrnustjóranum Michael Carrick.
Neville fór svo langt að efast um fagmennsku sumra leikmanna. Hið vandræðalega tap á Old Trafford lengdi sigurlausa hrinu Manchester United í átta leiki í öllum keppnum og framtíð Michaels Carrick sem knattspyrnustjóra er nú í verulegri óvissu. Neville óttast að Carrick verði rekinn og í hlaðvarpi sínu beindi sérfræðingur Sky Sports og fyrrum leikmaður United reiði sinni að leikmönnum félagsins sem hafa ekki staðið undir væntingum og sakaði þá um skort á fagmennsku. „Þetta var hörmung í dag, frammistaða sem var ekki neitt. Þetta er því mynstur af engu, af leikmönnum sem slökkva á sér og leggja niður vopnin,“ sagði Neville. Bruno Fernandes sat ónotaður á varamannabekknum eftir að hafa gagnrýnt leikaðferð Carricks opinberlega gegn Como, á meðan Lisandro Martinez, sem gagnrýndi stjórnendur félagsins eftir leikinn gegn Atletico Madrid, kom aðeins inn á völlinn sem varamaður í síðari hálfleik. Hafa snúist gegn honum „Michael Carrick er frábær maður,“ bætti Neville við. „Hann er maður heilinda, trúverðugleika, velsæmis, fagmennsku, hágæða fótbolta, stöðugleika og áreiðanleika. Allt sem leikmannahópurinn í þessum búningsklefa er ekki,“ sagði Neville. „Og hann mun gjalda fyrir það því honum hefur ekki tekist að skila árangri. Þetta hefur verið honum ofviða síðustu mánuði. Honum hefur ekki tekist að ná neinu út úr þeim og þeir hafa snúist gegn honum,“ sagði Neville. Ímyndaðu þér hvernig þeir eru á bak við tjöldin „Ég veit það því ef Bruno hefur snúist gegn honum opinberlega, með þessari litlu yfirlýsingu, ímyndaðu þér hvernig þeir eru á bak við tjöldin,“ sagði Neville. „Ef fyrirliðinn þinn segir þetta, ímyndaðu þér hvað þeir segja í búningsklefanum fyrir luktum dyrum þegar enginn er að hlusta. Það er skelfilegt. Nokkrir þeirra eru ekkert sérstaklega fagmannlegir. Ég bý í Manchester. Sumir þeirra eru ekkert sérstaklega fagmannlegir. Þannig að ég hef enga þolinmæði fyrir þeim,“ sagði Neville. Fara ekki að sofa á réttum tíma „Það eru nokkrir þeirra sem fara ekki að sofa á réttum tíma, borða ekki réttan mat, hugsa ekki um Manchester United hverja einustu mínútu dagsins og lifa ekki og hrærast í þessu félagi eins og þeir ættu að gera – og eins og atvinnumenn eiga að gera,“ sagði Neville. „Hvers vegna? Vegna þess að þetta hefur stigið þeim til höfuðs. Þeir eru ekki neitt, sumir þessara leikmanna,“ sagði Neville. Með vaxandi þrýstingi á starf sitt sagðist Michael Carrick, stjóri Manchester United, taka ábyrgð á núverandi stöðu liðsins. Neville vonar að Carrick beri ekki allan þungann af erfiðleikum United að undanförnu og óttast að liðið gæti farið annan áratug án úrvalsdeildartitils nema breytingar verði gerðar í æðstu stjórn félagsins. Getur ekki enn og aftur bara bitnað á stjóranum „Það eru nú fjórtán ár án úrvalsdeildartitils. Það verða án efa fimm eða tíu í viðbót því önnur félög eru byggð upp til árangurs en Manchester United ekki. Þeir taka slæmar ákvarðanir. Frá viðskiptalegu sjónarmiði er þetta mjög skaðlegt,“ sagði Neville. „Þetta getur ekki enn og aftur bara bitnað á knattspyrnustjóranum. Það verða að vera afleiðingar ofar í keðjunni. Það er ekki hægt að halda áfram að leyfa fólkinu sem gerir alltaf mistök að velja knattspyrnustjórann,“ sagði Neville.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Fleiri fréttir Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Sjá meira