Sjö ný skip frá Noregi Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. desember 2017 06:03 Tölvugerð mynd af skipunum sjö sem samið var um smíði á. Lengst til vinstri eru tvö skip í litum Gjögurs, síðan kemur skip Útgerðarfélags Akureyringa, þá tvö skip Skinney-Þinganes og loks skip Bergs-Hugins. Síldarvinnslan
Fulltrúar fjögurra íslenskra útgerðarfyrirtækja undirrituðu þann 1. desember samninga um smíði níu nýrra togskipa. Nýju skipin eru smíðuð af VARD í Noregi og fyrirkomulag og val á búnaði er unnið í samstarfi við útgerðirnar er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar, sem festi kaup á tveimur skipum. Aðrar útgerðir sem undirrituðu samninga við VARD eru Skinney-Þinganes, Útgerðarfélag Akureyringa og Gjögur. Skinney-Þinganes og Gjögur festu kaup á tveimur skipum hvort og Útgerðarfélag Akureyringa keypti eitt. Skipin verða 28,95 metrar að lengd og 12 metrar að breidd. Í skipunum verða íbúðir fyrir 13 manns og munu þau taka 244 x 460 lítra kör í lest sem gera um 80 tonn af ísuðum fiski. Þá segir á vef Síldarvinnslunnar að við hönnun á vinnsludekki skipanna verði vinnuaðstaða sjómanna, öflug kæling og góð meðhöndlun á fiski höfð að leiðarljósi. „Ástæða þess að ákveðið var að semja við VARD er sú að um er að ræða öflugt fyrirtæki, þar sem ferlið frá hönnun skips til afhendingar á fullbúnu skipi er á hendi sama aðila. Því er aðeins við einn aðila að semja,“ er haft eftir Gunnþóri B. Ingvasyni, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar, á vef fyrirtækisins.
Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Sjá meira