Ríkisstjórn Suður-Kóreu ætlar að herða reglugerðir um viðskipti með rafmyntir þar í landi, til að mynda með Bitcoin. Frá þessu greindi ríkisstjórnin í gær en aðgerðirnar miða að því að minnka umsvif slíkra viðskipta vegna óstöðugleika myntanna.
„Ríkisstjórnin hefur ítrekað varað við því að rafmyntir geti ekki þjónað hlutverki raunverulegs gjaldmiðils. Viðskipti með rafmyntir gætu leitt til mikils taps vegna yfirgengilegs óstöðugleika,“ sagði í tilkynningu ríkisstjórnarinnar í gær.
Á meðal aðgerða er að banna alfarið notkun nafnlausra reikninga fyrir rafmyntarviðskipti sem og að heimila viðskiptaeftirliti landsins að loka viðskiptastöðum. Áður hefur ríkisstjórnin tilkynnt um þau áform sín að leggja sérstakan skatt á viðskipti með rafmyntir til þess að draga úr viðskiptum.
Virði vinsælustu rafmyntarinnar, Bitcoin, hefur rúmlega fjórtánfaldast frá upphafi árs. Í Suður-Kóreu er myntin afar vinsæl og Reuters segir allt frá húsmæðrum til námsmanna hafa fjárfest í henni. Þegar þessi frétt var skrifuð var eitt Bitcoin andvirði 14.427 bandaríkjadala eða 1.505.313 króna. Í upphafi árs var myntin virði um þúsund bandaríkjadala.

