Hylja auga til að sýna sýrlensku ungbarni samstöðu Kjartan Kjartansson skrifar 25. desember 2017 11:21 Karim missti annað augað þegar hann lenti í stórskotaliðsárás í úthverfi Damaskusar 29. október. Rauði hálfmáninn í Tyrklandi
Fjöldi fólks, allt frá íþróttamönnum til stjórnmálamanna, hefur birt myndir af sér þar sem það hylur annað augað á samfélagsmiðlum undanfarið. Með því vill fólkið sýna ungum sýrlenskum dreng sem missti augað í stórskotaliðsárás samstöðu. Karim Abdel Rahman missti augað í árás á Austur-Ghouta, úthverfi Damaskusar, fyrir tveimur mánuðum. Hann er nú orðinn að tákni um blóðbaðið og mannúðarástandið sem hefur geisað í landinu í að verða sjö ár, að því er kemur fram í frétt CNN.Turkish aid agency reaches Syrian baby Karim | @yenisafakEN https://t.co/EBbBsJoeHw pic.twitter.com/CsdEdj6k47— Turkish Red Crescent (@RedCrescentTR) December 23, 2017 Undanfarið hefur fólk sýnt samstöðu sína á samfélagsmiðlum undir myllumerkjum eins og #SamstaðaMeðKarim [e. #SolidarityWithKarim] og #StöndumMeðKarim [e. #StandWithKarim]. „Hann og móðir hans lentu í stórskotaliðsárás á vinsælum markaði í Hammuriah í Austur-Ghouta. Móðir Karims féll í árásinni og Karim fékk verulega áverka á höfuðkúpu,“ segir Samband heilbrigðisþjónustu og hjálparsamtaka sem hjálpa stríðshrjáðum Sýrlendingum. Á meðal þeirra sem hafa sýnt Karim stuðning með þessum hætti eru franski knattspyrnumaðurinn Franck Ribery, Saad Hariri, forsætisráðherra Líbanons og Matthew Rycroft, sendifulltrúi Breta við Sameinuðu þjóðirnar.Syrian orphans show support to #BabyKarim. pic.twitter.com/mDROuJie8m— Turkish Red Crescent (@RedCrescentTR) December 23, 2017
Sýrland Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira