Erlent

Lést í stormi í Fær­eyjum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Flaggað í hálfa stöng við knattspyrnuvöllinn í Vági í Færeyjum. Myndin er úr safni.
Flaggað í hálfa stöng við knattspyrnuvöllinn í Vági í Færeyjum. Myndin er úr safni. Getty

Fertugur karlmaður lést í óveðrinu sem gekk yfir Færeyjar í gær. Slysið varð í Vági á Suðurey.

Færeyska ríkisútvarpið greinir frá en í frétt miðilsins segir að starfsfólk hjá danska fyrirtækinu Bygma, sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á byggingarefni, hafi verið að koma efni í öruggt skjól um klukkan tvö eftir hádegið í gær.

Maðurinn mun hafa slasast svo alvarlega að hann lést af sárum sínum. Lögregla í Færeyjum tengir andlátið við storminn í gær. Fram kemur í frétt færeyska ríkismiðilsins að ekkert vitni hafi verið að andlátinu.

Óveður gekk líka yfir Ísland í gær og skapaðist hætta á Siglufirði þegar þök fuku af þremur húsum í bænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×