Treysta Fjarðarkaupum fyrir jólunum 21. desember 2017 10:15 Í Fjarðarkaupum er persónuleg og fagleg þjónusta. MYNDIR/EYÞÓR
KYNNING Verslunin Fjarðarkaup í Hafnarfirði er einstök á sinn hátt. Þar er vöruúrval einstaklega fjölbreytt og persónuleg þjónusta laðar að trygga viðskiptavini. Mikil alúð er lögð við kjötborðið sem svignar undan kræsingum nú fyrir jólin.Mikið vöruúrval einkennir kjötborðið í Fjarðarkaupum.Fjarðarkaup eiga sér langa sögu í Hafnarfirði. Hana má rekja til ársins 1973 en Fjarðarkaup hafa verið á núverandi stað við Hólshraun frá árinu 1982. Þar hefur verslunin vaxið og dafnað. Viðskiptavinir Fjarðarkaupa koma af öllu höfuðborgarsvæðinu enda er aðkoma að versluninni góð og næg bílastæði. Hafnfirðingar segja sjálfir að Fjarðarkaup séu eins og félagsmiðstöð, þar rekst maður alltaf á einhvern kunnugan.FK-hamborgarhryggurinn er vinsælasti jólamaturinn í Fjarðarkaupum. MYNDIR/EYÞÓRGísli Sigurbergsson, einn eigenda Fjarðarkaupa, segir að fyrirtækið leggi mikinn metnað í kjötborðið alla daga og sérstaklega fyrir hátíðir. „FK-hamborgarhryggurinn er okkar stolt. Kjötið er sérvalið, reykt og saltað fyrir Fjarðarkaup. FK-hamborgarhryggurinn hefur verið mjög vinsæll undanfarin ár og mest seldi jólamaturinn hjá okkur,“ segir Gísli. „Reyndar er svínakjöt vinsæll matur á jólunum en í öðru sæti hjá okkur er heill svínabógur, síðan lambahryggur eða -læri og loks purusteikin,“ segir hann enn fremur. „Svínakjöt er ódýr matur og það hefur verið mikil aukning í sölu þess hjá okkur undanfarið,“ bætir Gísli við en Fjarðarkaup er líka með mikið úrval af hangilærum og frampörtum, nautasteikum og alls kyns villibráð.Veglegt kjötborð sem svignar undan kræsingunum í Fjarðarkaupum.„Við leggjum ríka áherslu á metnaðarfullt kjötborð. Tveir kjötiðnaðarmenn starfa hjá okkur við að þjóna viðskiptavininum eftir hans þörfum. Hægt er að panta alls kyns útfærslur af fylltum lambalærum eða lambahryggjum. Við erum með veglegt kjötborð og persónulega þjónustu. Allir geta fundið rétta jólamatinn enda er kjötborðið okkar sérstaða og starfsfólkið sinnir öllum óskum viðskiptavinarins.“Vinsælt er að panta fylltan lambahrygg eða -læri fyrir jólin í Fjarðarkaupum.Það eru ekki margar verslanir sem bjóða upp á jafn fjölbreytt úrval í kjötborði og Fjarðarkaup. Viðskiptavinurinn velur kjötið sjálfur og því er pakkað á staðnum. Þannig veit fólk alltaf að hverju það gengur í Fjarðarkaupum. Þótt borðið sé stútfullt af jólakræsingum þessa dagana þá er einnig fiskborð í Fjarðarkaupum þar sem boðið er upp á nýjan fisk og fiskrétti. Gísli segir að sömuleiðis sé hægt að fá skötu en hún er í lofttæmdum umbúðum til þæginda fyrir viðskiptavininn.Kjötiðnaðarmenn geta útbúið kjötið eins og viðskiptavinurinn vill hafa það.Í Fjarðarkaupum er mikið vöruúrval og viðskiptavinir geta fengið allt sem þá vantar fyrir jólin. „Við erum með fjölbreytt meðlæti með jólamatnum, hvort sem það er með FK-hamborgarhryggnum eða öðrum réttum,“ segir Gísli en þess má geta að í Fjarðarkaupum er heimilisdeild þar sem er úrval af fallegri gjafavöru. Þá er hægt að grípa jólanáttfötin eða -nærfötin með í verslunarferðinni í Fjarðarkaup. Verslunin Fjarðarkaup verður opin til kl. 19 í dag og 22 á föstudag og laugardag. Hægt er að skoða afgreiðslutíma á heimasíðunni www.fjardarkaup.is
Kynningar Lífið Viðskipti Mest lesið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða í dag Makamál Matt Brown er látinn Lífið Áslaug býður í partý Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Fleiri fréttir Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira