Ekið á gangandi vegfarendur í miðborg Melbourne Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. desember 2017 07:30 Frá vettvangi í Melbourne í dag. vísir/epa
Lögreglan í Melbourne hefur handtekið tvo menn, annan þeirra ökumann hvíts jeppa sem ók á gangandi vegfarendur í Melbourne upp úr klukkan 17 að staðartíma, eða klukkan 6 í morgun að íslenskum tíma.Að minnsta kosti 14 manns eru slasaðir en ökumaðurinn bílsins keyrði á vegfarendur við Flinders Street sem er fjölfarin gata í miðborg Melbourne. Myndir frá vettvangi sýna fólk sem liggur í kringum hvítan jeppann. Á meðal hinna slösuðu er ungt barn sem er með alvarlega höfuðáverka að því er fram kemur í frétt á vef BBC. Nokkrir hinna slösuðu eru einnig alvarlega slasaðir. Vitni á vettvangi hefur lýst því hvernig ökumaðurinn keyrði niður fólk með þeim afleiðingum að „fólk flaug út um allt.“ Annað vitni segir að um 15 sekúndur hafi liðið frá því að ökumaðurinn hóf að aka á fólk og þar til bifreiðin stöðvaðist. „Hann fór beint og hratt gegn rauðu ljósi og það kom bara bang, bang, bang. Hann keyrði á einn á eftir öðrum.“ Lögregla hefur hvatt fólk til að forðast svæðið sem hefur verið lokað af. Ekkert hefur verið gefið út um það að um hryðjuverk sé að ræða en lögreglan segir þó að um viljaverk hafi verið að ræða.Fréttin var síðast uppfærð klukkan 08:13.Breaking: Video of reactions after SUV mows down people in Melbourne, Australia. At least 15 injured. Witnesses report that car did not slow down before the ramming. pic.twitter.com/sY6wPRC4SC— PM Breaking News (@PMBreakingNews) December 21, 2017 Melbourne: 13 people taken to hospital after car drives into crowd on Flinders Street, authorities say https://t.co/rxM7tuZp9p pic.twitter.com/Hv7kZ0SvSC— BBC News (World) (@BBCWorld) December 21, 2017 Image of police dragging man from 4WD which ploughed into pedestrians in Flinders St. pic.twitter.com/ANBoKjnABR— Brett Mcleod (@Brett_McLeod) December 21, 2017
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira