Frábær lokakafli Wolff skilaði Þýskalandi sigri Kristinn Páll Teitsson skrifar 19. janúar 2018 18:43 Faeth sækir að tékkneska markinu í dag en hann var markahæstur með átta mörk í þýska liðinu. Vísir/getty
Andreas Wolff lokaði fyrir markið á lokamínútunum sem skilaði þýska landsliðinu í handbolta 22-19 sigri á Tékklandi á EM í handbolta í Króatíu í leik sem lauk rétt í þessu. Bæði lið voru aðeins með tvö stig fyrir leikinn og þýddi það að allt annað en sigur gerði nánast út um möguleika liðanna á verðlaunum á mótinu. Tékkar sem fengu stóran skell í fyrstu umferð gegn Spánverjum byrjuðu af krafti og voru með frumkvæðið framan af. Spiluðu sterka vörn og gáfu þýska liðinu ekkert eftir og leiddu með einu marki í hálfleik, 10-9. Tékkneska liðið hélt forskotinu framan af í seinni hálfleik en á lokakaflanum var komið að Wolff í marki Þýskalands. Varði hann vel á sama tíma og þýska liðinu tókst að finna glufur á varnarleik Tékklands og skilaði það forskoti sem Tékkar náðu ekki að brúa. Steffen Faeth var atkvæðamestur í þýska liðinu með átta mörk en Uwe Gensheimer kom næstur með þrjú mörk. Með sigrinum skaust Þýskaland sem hefur titil að verja á mótinu upp í efsta sæti 2. riðils en Makedónía, Spánn og Danmörk eiga öll leik inni.
EM 2018 í handbolta Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira