Bíó og sjónvarp

Leikstjóri Lögregluskólans látinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Steve Guttenberg (til vinstri) og Michael Winslow fyrir miðju höfðu gaman af því að stríða yfirmanni sínum í Lögregluskólanum.
Steve Guttenberg (til vinstri) og Michael Winslow fyrir miðju höfðu gaman af því að stríða yfirmanni sínum í Lögregluskólanum.
Hugh Wilson, höfundur gamanþáttaraðarinnar WKRP in Cincinnati og leikstjóri fyrstu myndarinnar um Lögregluskólann, Police Academy, er látinn 74 ára gamall. Wilson lést þann 14. janúar í Charlottesville í Virginíu.

Wilson var einn handritshöfunda að Bob Newhart show og The Tony Randall Show. Hlaut hann Emmy verðlaun fyrir skrif sín í gamanþáttunum Frank’s Place og tvær tilnefningar fyrir The Famous Teddy Z og WKRP in Cincinnati.

Þá voru honum í tvígang veitt Humanitas verðlaun fyrir skrif sín fyrir sjónvarp og kvikmyndir að því er segir í umfjöllun Variety.

Meðal annarra mynd sem hann leikstýrði voru First Wives Club, Blast from the Past og Guarding Tess.

Wilson lætur eftir sig eiginkonu, fimm börn og fjögur barnabörn.


Tengdar fréttir

Leikari úr Lögregluskólanum látinn

Bubba Smith, fyrrverandi stjarna úr ameríska fótboltanum og leikari er látinn. Bubba var án efa frægastur fyrir að leika lögreglumanninn Moses Hightower í Police Academy myndunum. Eftir því sem fram kemur í Los Angeles Times lést Bubba Smith á heimili sínu, en dánarorsök er ókunn. Hann var 66 ára gamall. Bubba Smith lék í sex Police Academy myndum af sjö.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.