Gerðu mistök og sendu út eldflaugaviðvörun Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 13. janúar 2018 20:36 Íbúar Hawaii voru dauðskelkaðir þegar þeir fengu eldflaugaviðvörun frá öryggisyfirvöldum. Skilaboðin reyndust röng. Visir/afp
Íbúar á Hawaii fengu í kvöld skilaboð frá öryggisyfirvöldum þess efnis að eldflaug stefndi á eyjarnar. Í skilaboðunum var fólki bent á að leita skjóls tafarlaust. Hér væri ekki um æfingu að ræða. Þetta reyndist þrátt fyrir það hafa verið mistök, að íbúum steðjaði engin hætta. Verið er að kanna hvað fór úrskeiðis. Skilaboðin ollu mikilli geðshræringu á meðal íbúa Hawaii en margir lýstu yfir hræðslu sinni á samfélagsmiðlum. Ekki leið þó á löngu þar til lögbær yfirvöld á sviði neyðarþjónustu leiðréttu skilaboðin. Að Hawaii eyjum stafaði engin eldflaugahætta. Þetta kemur fram í frétt CNN.Þetta voru skilaboðin sem íbúarnir fengu.visir/afpVern Miyagi, sem fer fyrir Neyðarþjónustunni, segir að um mistök hafi verið að ræða og að verið sé að reyna að finna út hvers vegna skilaboðin hafi verið send. Mazie Hirono, þingmaður Demókrataflokksins, sagði á Twitter að á tímum aukinnar spennu í alþjóðamálum sé brýnt að ganga úr skugga um að allar upplýsingar séu réttar sem borgurum eru látnar í té. Það sé mikilvægt að komast að því hvað hafi raunverulega gerst og að tryggja að svona mistök geti ekki endurtekið sig. NO missile threat to Hawaii.— Hawaii EMA (@Hawaii_EMA) January 13, 2018
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira