Yfirvöld í Kenía slökktu í gær á útsendingum einkarekinna sjónvarpsstöðva sem ætluðu að sýna beint frá því er Raila Odinga, stjórnarandstöðuleiðtogi og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, lét setja sig inn í embætti forseta.
Odinga sniðgekk forsetakosningar októbermánaðar en hann hafði tapað fyrir sitjandi forseta, Uhuru Kenyatta, í forsetakosningum ágústmánaðar. Þær kosningar voru þó ógildar og vegna óánægju með það sem hann kallaði „ófullnægjandi umbætur“ ákvað Odinga að sniðganga síðari kosningarnar.
Hundruð höfðu safnast saman í almenningsgarði í miðborg höfuðborgarinnar Naíróbí í gær til að fylgjast með athöfninni en þar sem Odinga var ekki á kjörseðlinum í október hafði athöfnin ekkert lagalegt gildi.
Kenyatta forseti varaði fjölmiðla við því að fjalla um athöfnina og ríkissaksóknari Kenía sagði að með gjörðum sínum væru Odinga og stuðningsmenn hans að fremja landráð.
Bönnuðu útsendingar af ekki-innsetningu Odinga

Tengdar fréttir

Lögregla beitti táragasi gegn þeim sem vildu sjá innsetningu forseta
Uhuru Kenyatta sór í gær embættiseið forseta Keníu á Kasarani-leikvanginum í höfuðborginni Naíróbí.

Odinga fer ekki aftur í forsetaframboð í Keníu
Óvíst er hvort forsetakosningar fara fram í október í Afríkuríkinu Keníu. Kosið var í ágúst en hæstiréttur ógilti niðurstöðurnar.

Odinga kærir niðurstöðu forsetakosninganna í Kenýa
Óháðir eftirlitsaðilar hafa áður sagt að ekkert undarlegt hafi farið fram við framkvæmd kosninganna.