Lífið

Sigurvegari Eurovision 2013 kemur fram á lokakvöldinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Emmelie de Forest þegar hún vann árið 2013.
Emmelie de Forest þegar hún vann árið 2013. Vísir/getty
Danska söngkonan Emmelie de Forest sem sigraði Eurovision söngvakeppnina árið 2013 með laginu Only Teardrops mun koma fram á úrslitum Söngvakeppninnar í Laugardalshöll 3. mars.

Lagið Only Teardrops vann hug og hjörtu Evrópubúa þegar keppnin var haldin í Malmö í Svíþjóð en lagið sigraði með 281 stigi, 47 stigum fyrir ofan lagið í 2. sæti.  Íslendingar voru afar hrifnir af laginu og gáfu því 12 stig í keppninni.

Emmelie verður 25 ára þann 28. febrúar.  Hún ólst upp í Danmörku og Svíþjóð en móðir hennar er dönsk og faðirinn sænskur. Emmelie mun sem fyrr segir koma fram á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar en hún mun einnig syngja á aðalæfingunni, fjölskyldurennslinu, fyrr um daginn.

Nú þegar hefur verið tilkynnt að sænski söngvarinn Robin Bengtsston muni koma fram í Söngvakeppninni í ár.  Robin flutti sænska lagið I can’t go on í Eurovision söngvakeppninni í fyrra.  Svala Björgvinsdóttir, sigurvegari Söngvakeppninnar í fyrra mun einnig stíga á svið og von er á leynigesti eins og kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum Söngvakeppninnar.

Miðasala á Söngvakeppnina hefst kl. 12 á hádegi í dag, þriðjudag, á tix.is.

Um er að ræða 4 viðburði:

10. febrúar í Háskólabíói kl. 19.30 – Fyrri lögin 6 sem keppa í undanúrslitunum.

17. febrúar í Háskólabíói kl. 19.30 – Seinni lögin 6 sem keppa í undanúrslitunum.

3. mars í Laugardalshöll kl. 14.30 – Lögin sem keppa til úrslita. Aðalæfing, Fjölskyldurennsli.

3. mars í Laugardalshöll kl. 19.30 – Úrslitin í Söngvakeppninni 2018.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.