Lífið

Kelsey Grammer minntist John Mahoney: „Hann var faðir minn. Ég elskaði hann“

Atli Ísleifsson skrifar
Kelsey Grammer og John Mahoney léku saman í þáttunum Frasier um ellefu ára skeið.
Kelsey Grammer og John Mahoney léku saman í þáttunum Frasier um ellefu ára skeið. Twitter
Bandaríski leikarinn Kelsey Grammer minntist leikarans John Mahoney á Twitter-síðu sinni í gær, en Mahoney lést síðastliðinn sunnudag, 77 ára að aldri.

Grammer og Mahoney léku saman í þáttunum Frasier um ellefu ára skeið, þar sem Mahoney fór með hlutverk Martin Crane, föður persónu Grammer, Frasier.

Grammer birtir mynd af þeim félögum í faðmlögum með textanum: „Hann var faðir minn. Ég elskaði hann.“

Hinn skapstirði Martin Crane var einn af vinsælustu persónum þáttanna, þar sem fylgst var með sambandi Martin og sonanna Frasier og Niles.

Mahoney andaðist í Chicago, en hann hafði glímt við krabbamein í lungum, auk þess að hafa greinst með heilaæxli.

Þættirnir um Frasier voru framleiddir á árunum 1993 til 2004 og urðu alls 263 talsins.

Leikkonan Peri Gilpin, sem fór með hlutverk Roz í þáttunum, hefur sömuleiðis minnst Mahoney en hún birti mynd af honum þar sem hann tók lagið í brúðkaupi hennar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.