Fimmtán mánuðir fyrir brot gegn barnabarni Kjartan Kjartansson skrifar 2. febrúar 2018 16:08 Dómurinn var kveðinn upp í gær. Maðurinn þarf að greiða barnabarni sínu 1,2 milljónir króna í bætur. Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn sonardóttur sinni. Stúlkan var á aldrinum ellefu til þrettán ára þegar brotin áttu sér stað frá 2013 til 2015. Brotin áttu sér ýmist stað í orlofsíbúð, á heimili barnabarnsins og á heimili afans. Hann hafi í að minnsta kosti þrjú skipti áreitt stúlkuna, meðal annars með því að strjúka kynfæri hennar innanklæða. Stúlkan greindi foreldrum sínum fyrst frá brotum mannsins í nóvember 2015. Þá hafi hún átt að gista hjá honum en ekki viljað fara. Hún hefði farið inn í herbergið sitt og sent foreldrum sínum skilaboð á Facebook um að hann hefði komið óþægilega við sig á kynfærum. Hún hefði einnig lýst áhyggjum af því að litla systir hennar hefði líka orðið fyrir þessu. Í dómnum kemur fram að stúlkan hafi greint frá því að þetta hafi gerst fjórum til fimm sinnum síðustu tvö árin á undan. Það hafi ýmist verið á heimili afa hennar eða hennar. Eitt skiptið hafi verið 2013 í sumarbústað.Hefur átt erfitt uppdráttar eftir brotin Vanlíðan stúlkunnar í kjölfar brotanna er lýst í dómnum. Hún hafi byrjað að skrópa úr skólanum, átt erfitt með að einbeita sér og sagt móður sinni að hún væri endalaust að hugsa um ætlað kynferðisbrot, héldi að hún væri „ónýt“, væri mjög óttaslegin að mæta ákærða og ætti erfitt með að sofna á kvöldin vegna eigin hugsana. Þá er lýst atviki um jólin 2016 þegar stúlkan vildi ekki fara í jólaboð. Hún hafi grátið mikið og viljað vera ein heima. Hún hafi sagt ástæðuna vera breytt viðhorf ættingja til hennar, en sumir forðuðust hana og vissu ekki hvernig þeir ættu að vera nálægt henni. Leiddist stúlkan meðal annars út í neyslu fíkniefna í kjölfarið.Misræmi í framburði afans Í skýrslutökum hjá lögreglu kannaðist maðurinn við að eitthvað væri til í ásökunum stúlkunnar. Hann hefði í einhver skipti farið inn fyrir klæði hennar. Bar hanns hins vegar við að hann minntist atvikanna óljóst eða ekki. Hann hefði ekki haft ásetning um að leita á stúlkuna. Fyrir dómi bar maðurinn hins vegar að hann kannaðist ekki við neitt af því sem stúlkan bar um. Neitaði hann að hafa strokið stúlkunna á kynfærum. Útskýrði hann misræmið í framburði með því að hann hefði verið í áfalli við skýrslutökuna og ekki munað atburði vel.Braust trúnaðarskyldum gagnvart stúlkunni Héraðsdómur taldi framburð stúlkunnar skýran, afdráttarlausan og mjög trúverðugan. Á móti væri framburður afans óljós og reikull um hvort hann hefði snert stúlkuna og hversu oft það hefði gerst. Brotum mannsins er lýst sem alvarlegum. Hann hafi brugðist trúnaðarskyldum sínum gagnvart stúlkunni. Refsing hans var ákvörðuð fimmtán mánaða fangelsi og var þar tekið tillit til tafa á á málinu sem voru manninum ekki að kenna. Þá var maðurinn dæmdur til að greiða stúlkunni 1,2 milljónir króna í bætur auk málsvarnarlauna verjanda síns og þóknun réttargæslumanns stúlkunnar, alls um 1,5 milljónir króna.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Sjá meira