Lena Dunham fór í legnám vegna legslímuflakks Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. febrúar 2018 16:30 Lena Dunham segir að það hafi verið erfið ákvörðun að fara í legnám. Vísir/AFP
Leikkonan, leikstjórinn og handritshöfundurinn Lena Dunham fór í legnám nýlega vegna endómetríósu eða legslímuflakks. Sjúkdómurinn orsakast af því að frumur úr innra legi legsins finnast á öðrum stöðum í kviðarholinu en endómetríósa er krónískur sjúkdómur sem talið er að 10 prósent stúlkna og kvenna þjáist af. Hann getur valdið konum gríðarlegum sársauka. Dunham greindi frá aðgerðinni í ritgerð sem hún birti í Vogue en fjallað er um málið á vef Guardian. Voru bæði legið og leghálsinn fjarlægð. Með aðgerðinni vonast Dunham til að binda enda á krónískan sársauka sem hún hefur þjáðst af árum saman en vegna sjúkdómsins hefur hún farið í fjölda flókinna aðgerða. Dunham segir að ákvörðunin hafi verið erfið vegna þess að hana langi til að eignast börn en eftir legnámið er hún jákvæðari fyrir framtíðinni og vonandi laus við sjúkdóminn sem læknavísindin vita lítið um. „Mér fannst ég hafa neitt val áður en nú veit ég að ég hef valkosti. Bráðum mun ég kanna hvort eggjastokkarnir mínir [...] hafi egg,“ skrifar Dunham og segir jafnframt að hún geti hugsað sér að ættleiða. Talið er að um 175 milljónir kvenna í heiminum þjáist af endómetríósu. Læknar greina ekki alltaf sjúkdóminn heldur telja að um túrverki sé að ræða. Ef konur fá svo rétta sjúkdómsgreiningu getur verið erfitt að finna rétta meðferð við sjúkdómnum þar sem lítið er vitað um endómetríósu, eins og áður sagði.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Fleiri fréttir Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Sjá meira