Fjórir lögreglumenn í haldi vegna hvarfs þriggja Ítala í Mexíkó Birgir Olgeirsson skrifar 25. febrúar 2018 08:42 Lögreglumennirnir segjast hafa fylgt skipunum glæpamanna. Vísir/EPA
Fjórir lögreglumenn eru í haldi grunaðir um að hafa numið þrjá ítalska karlmenn á brott að beiðni glæpamanna þar í landi.Greint er frá þessu á vef Reuters en þar kemur fram að ítölsku karlarnir hurfu 31. janúar síðastliðinn eftir að hafa verið handteknir af lögreglumönnum við bensínstöð í borginni Tecalitlan. Saksóknari segir lögreglumennina fjóra, þrjá karla og eina konu, hafa átt þátt í hvarfi Ítalanna sem eru frá Napólí og heita Raffaele Russo, Antonio Russo og Vincenzo Cimmino. Saksóknarinn greindi jafnframt frá því að lögreglumenn hefðu viðurkennt við yfirheyrslu að þeim hefði verið skipað af glæpagengi í borginni að afhenda mennina. Leit stendur enn yfir að ítölsku mönnunum og er rannsókn málsins í fullum gangi. Reuters segir að það liggi ekki fyrir hvers vegna lögreglumönnunum var skipað að gera þetta. Tecalitlan er í Jalisco-ríki í Mexíkó. Jalisco er heimasvæði Jalisco New Generation Cartel, eins af öflugustu glæpasamtökum Mexíkó sem er þekkt fyrir að hafa lögreglumenn í vasanum. Saksóknari gat ekki upplýst hvort Ítalirnir þrír hefðu verið afhentir Jalisco New Generation Cartel.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Sjá meira