Íslendingur sagður hafa fallið í stríðsátökum í Sýrlandi Birgir Olgeirsson, Kolbeinn Tumi Daðason og Samúel Karl Ólason skrifa 7. mars 2018 06:00 Haukur Hilmarsson var fæddur árið 1986.
Haukur Hilmarsson, 31 árs Íslendingur, er sagður hafa fallið í átökum í Afrin í Sýrlandi í febrúar. Frá þessu greinir ANF fréttastofan og vísar í yfirlýsingu frá YPG, her sýrlenskra Kúrda, sem Haukur barðist með. Haukur er sagður hafa látist í loftárás tyrkneska hersins þann 24. febrúar síðastliðinn ásamt tveimur arabískum liðsfélögum. Var það hluti af áhlaupi tyrkneska hersins og uppreisnarmanna sem studdir eru af Tyrkjum á Afrin-hérað sem hefur verið nefnt „Operation Olive Branch“. YPG-liðar hafa barist gegn Tyrkjum í héraðinu ásamt sveitum sem studdar eru af yfirvöldum í Íran. Tyrkneskur blaðamaður greindi fyrstur frá falli Hauks á Twitter í gær og í framhaldinu dreifðust tíðindin í ýmsa tyrkneska fjölmiðla og víðar á samfélagsmiðlum. Kúrdar og Sýrlendingar syrgja Hauk og kalla hann hetju á meðan Tyrkir fagna og segja að hryðjuverkamaður sé fallinn. Ekki fengið líkið afhent Utanríkisráðuneytið vann að því í gær að fá fregnirnar staðfestar í gegnum ræðismenn sína í Tyrklandi og alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra en án árangurs enn sem komið er. Ekkert hefur komið fram sem rengir fregnirnar af falli Hauks. Ættingjar og vinir Hauks fengu tíðindin í gær og þá fyrst í gegnum samfélagsmiðla. Þau hafa ekki fengið frekari upplýsingar en það sem fram hefur komið í fjölmiðlum í miðausturlöndum. Í yfirlýsingu YPG, sem ANF vísar til, segir að tilraunir YPG til þess að fá lík Hauks afhent hafi ekki borið árangur. Haukur dregur Bónusfánann að húni á Alþingishúsinu 8. nóvember 2008. Dæmdar skaðabætur fyrir ólögmæta handtöku Haukur, sem var 31 árs gamall, komst í sviðsljós fjölmiðla hér á landi í nóvember árið 2008 þegar hann dró fána verslunarinnar Bónus að húni á Alþingishúsinu. Haukur var handtekinn af lögreglu tveimur vikum síðar. Lögreglan bar því við að handtakan tengdist eftirstöðvum átján daga fangelsisdóms fyrir að hafa ekki farið eftir fyrirmælum lögreglu þegar hann tók þátt í mótmælaaðgerðum gegn Kárahnjúkavirkjun og stóriðjuframkvæmdum í Reyðarfirði. Fjölmargir mótmælendur mættu í kjölfarið fyrir utan lögreglustöðina við Hlemm vegna handtökunnar, tóku sér stöðu þar og gerðu sumir tilraun til að frelsa hann. Tveimur árum síðar voru Hauki dæmdar 150 þúsund krónur í bætur frá íslenska ríkinu vegna handtökunnar sem var sögð harkaleg og niðurlægjandi. Haukur Hilmarsson á þaki Alþingishússins. Gekk í YPG í gegnum RUIS Greint var fyrst frá andláti Hauks á Twitter en þar er hann sagður hafa gengið til liðs við YPG í gegnum gríska anarkistahópinn RUIS sem tilheyrir alþjóðlegri frelsishreyfingu tengdri stríðinu í Sýrlandi árið 2017. RUIS-hópurinn var stofnaður árið 2015 og er að mestu skipaður grískum sjálfboðaliðum. International Freedom Batallion, samtök vinstri sinnaðra erlendra meðlima YPG, sagði frá falli Hauks á Facebook í gær en þar segir að Haukur, sem sagður er hafa verið liðþjálfi, hafi í fyrstu reynt að ganga til liðs við YPG þegar baráttan um bæinn Manbij stóð yfir en hann hafi verið sendur frá Írak til Íslands. Seinna meir hafi honum tekist að komast til Sýrlands og þar hafi hann tekið þátt í orrustunni um Raqqa, sem var nokkurs konar höfuðborg Íslamska ríkisins. ANF fréttastofa Kúrda staðfestir að Haukur hafi gengið til liðs við hersveitirnar í júlí 2017 og hafi tekið þátt í orrustunni um Raqqa. International Freedom Batallion herdeildin segir Hauk hafa öðlast virðingu félagar sinna í orrustunni um Raqqa. Afrin-hérað er við landamæri Tyrklands en héraðið lýtur stjórn sýrlenskra Kúrda. Sókn Tyrkja inn í héraðið hefur staðið yfir síðan í janúar en þeir njóta liðsinnis sýrlenskra uppreisnarmanna. Þá hafa Tyrkir verið sakaðir um að gera loftárásir á almenna borgara og sömuleiðis hafa uppreisnarmenn þeirra meðal annars verið sakaðir um aftökur borgara og þjófnað. Gífurlega flókið stjórnmálalandslag Herdeildir hliðahollar Sýrlandsstjórn hafa farið inn í Afrinhérað en Vísir sagði frá því í febrúar síðastliðnum að Kúrdar og Sýrlandsstjórn hafi gert samkomulag um að stöðva sókn Tyrkja. Stjórnarher Sýrlands kemur þó ekki að samkomulaginu, heldur er um að ræða vopnaðar sveitir sem studdar eru af Íran. Samkomulagið er til marks um hið gífurlega flókna stjórnmálalandslag Sýrlands og gæti mögulega leitt til átaka á milli Assad, Íran og mögulega Rússlands gegn Tyrklandi. Regnhlífarsamtökin Syrian Democratic Forces, eða SDF, sem innihalda YPG og aðra vopnaða hópa í Sýrlandi, lýstu því yfir nýverið að dregið yrði úr aðgerðum gegn leifum Íslamska ríkisins við landamæri Sýrlands og Írak, þar sem fjöldi sýrlenskra Kúrda væri á leið til Afrinhéraðs.
Mál Hauks Hilmarssonar Sýrland Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Kanna orðróm um að Íslendingur hafi fallið í stríðsátökum í Sýrlandi Íslendingurinn á að hafa barist með YPG-liðum, sem er her sýrlenskra Kúrda. 6. mars 2018 14:50 Ráðuneytið hefur ekki áður heyrt af Íslendingum í Sýrlandi Utanríkisráðuneytið er í sambandi við ræðismenn Íslands í Tyrklandi og alþjóðadeild ríkislögreglustjóra vegna orðróms um Íslending sem sagður er hafa fallið í Sýrlandi. 6. mars 2018 19:30 Mest lesið Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Veður „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Innlent Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum Innlent Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Innlent Átti að fá smáaura fyrir sögulegt smygl Innlent Enn óvíst hvar miðja bakkans lendir Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Fleiri fréttir Ráðaleysi, viðvörun og hetjusaga Yrði glaður að fá Ísland í ESB: Atkvæðagreiðsla á næstu mánuðum Fékk Prins Póló: „Pabbi þetta er fyrir þig“ Enginn meðalmaður eða meðalkona til í alvörunni Maðurinn grunaður um manndráp á Kársnesi áfram í haldi Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum Yfir hundrað þúsund gert kröfu: „Réttlæti skal ná fram að ganga“ Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Tæp sextíu prósent landsmanna vilja banna sjókvíaeldi Sjálfstæðisflokkurinn ekki í samkeppni og „alveg slök“ í Miðflokknum Einar fundar með borginni um málefni miðborgar Átti að fá smáaura fyrir sögulegt smygl Þjónustubátur sökk í Tálknafjarðarhöfn Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Enn óvíst hvar miðja bakkans lendir Snjókomubakkinn nálgast borgina Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Ellefu í framboði í prófkjöri Pírata Býður sig fram í embætti varaformanns VG Hálfs árs fangelsi fyrir að berja mann með bifhjólakeðju Rúmar sex hundruð milljónir til sjö stjórnmálaflokka Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri Þrjár stúlkur réðust á eina Fangavörður sendur í leyfi Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Vantrauststillagan sýni vanhæfni meirihluta Vöku Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Ný bráðamóttaka að taka á sig mynd Sjá meira
Kanna orðróm um að Íslendingur hafi fallið í stríðsátökum í Sýrlandi Íslendingurinn á að hafa barist með YPG-liðum, sem er her sýrlenskra Kúrda. 6. mars 2018 14:50
Ráðuneytið hefur ekki áður heyrt af Íslendingum í Sýrlandi Utanríkisráðuneytið er í sambandi við ræðismenn Íslands í Tyrklandi og alþjóðadeild ríkislögreglustjóra vegna orðróms um Íslending sem sagður er hafa fallið í Sýrlandi. 6. mars 2018 19:30