Innlent

Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Súðavíkurhlíð er á milli Súðavíkur og Ísafjarðar.
Súðavíkurhlíð er á milli Súðavíkur og Ísafjarðar. Súðavíkurhreppur

Óvissustigi hefur verið lýst yfir í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu.

Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þröskuldar og Dynjandisheiði einnig á óvissustigi.

Steingrímsfjarðarheiði er einnig á óvissustigi en heiðin varð ófærð fyrr í kvöld og veginum því lokað.

Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum til klukkan eitt í nótt. Þá tekur við gul veðurviðvörun sem fellur úr gildi klukkan fimm í fyrramálið.

Hægt er að fylgjast með færð á vegum á vefsíðu Vegagerðarinnar, umferðin.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×