Eigendur Nissan Pathfinder-jeppa hvattir til að láta skoða þá Kjartan Kjartansson skrifar 6. mars 2018 12:35 Nissan hefur boðið eigendum eldri gerða Navara og Pathfinder að kaupa upp bílana. Aðeins Navara-bílarnir hafa þó verið innkallaðir. Vísir/AFP
Neytendastofa hvetur eigendur Nissan Pathfinder-bifreiða til þess að láta skoða bílana hjá BL ehf. til að fá úr því skorið hvort að grindin í þeim sé í lagi. Óeðlileg tæring í grindunum varð til þess að Nissan Navara-bílar voru innkallaðir í desember. Í frétt á vef Neytendastofu kemur fram að Nissan hafi sent frá sér tilkynningu varðandi tæringuna í grind Pathfinder-bíla. Ekki hafi þó orðið vart við hana í eins miklum mæli og í Navara-bifreiðunum. Eigendur bifreiða sem eru yngri en 12 ára eru hvattir til að koma með bifreiðarnar í skoðun til BL ehf. til að hægt sé að mæla styrkleika grindanna. Ef í ljós kemur að styrkleiki grinda sé ekki nægilegur miðað við staðla muni BL ehf. grípa til viðeigandi ráðstafana í samráði við Nissan. Tilkynnt var um innköllun Navara-bifreiðana vegna tæringarinnar í desember. Á sama tíma sagði BL í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis að fyrirtækið byðist til þess að kaupa upp Pathfinder-bíla sem væru yngri en tólf ára ef tæringin greindist í grind þeirra. Nokkur fjöldi óánægðra eigenda Pathfinder og Navara hefur meðal annars stofnað Facebook-hóp þar sem þeir hafa deilt reynslusögum sínum. Margir þeirra eru óánægðir með að sitja uppi með verðlausa bíla og gagnrýna þeir BL meðal annars fyrir að láta sig ekki vita af tæringunni. Eigandi Pathfinder-bíls sem keyptur var upp í fyrra lýsti sömu óánægju við Vísi í desember. Neytendastofa hefur haft málin til skoðunar frá því í fyrra.
Tengdar fréttir Ósáttur við vinnubrögð BL með Nissan-jeppa: Eigendur ekki látnir vita af vandamáli með bílana Fyrrverandi eigandi Nissan-jeppa sem BL keypti vegna tæringar í grind segist hafa fundið nokkra slíka bíla til sölu á bílasölum í Reykjavík. 21. desember 2017 09:30 BL innkallar Nissan Navara og kaupir upp Pathfinder Nissan býðst til að kaupa upp Navara- og Pathfinder-bíla sem eru yngri en tólf ára vegna tæringar í grindum þeirra. Tilkynnt hefur verið um innköllun Navara-bílanna. 20. desember 2017 09:00 Fá 1.600 þúsund fyrir ónýtan bíl Hveragerðisbær tekur tilboði BL. 7. febrúar 2018 06:00 Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira
Ósáttur við vinnubrögð BL með Nissan-jeppa: Eigendur ekki látnir vita af vandamáli með bílana Fyrrverandi eigandi Nissan-jeppa sem BL keypti vegna tæringar í grind segist hafa fundið nokkra slíka bíla til sölu á bílasölum í Reykjavík. 21. desember 2017 09:30
BL innkallar Nissan Navara og kaupir upp Pathfinder Nissan býðst til að kaupa upp Navara- og Pathfinder-bíla sem eru yngri en tólf ára vegna tæringar í grindum þeirra. Tilkynnt hefur verið um innköllun Navara-bílanna. 20. desember 2017 09:00