Ef barn er leitt þarf lausn að finnast Kolbrún Baldursdóttir skrifar 6. mars 2018 10:23 Reynsla mín að vinna með börnum og unglingum nær aftur til ársins 1992. Börn koma ekki til sálfræðings að ástæðulausu. Það er eitthvað sem hrjáir þau. Verkefni sálfræðings er að finna út með barninu og foreldrunum hvað það er sem orsakar vanlíðan þess og hvað hugsanlega viðheldur henni. Með því að skoða gaumgæfilega helstu svið barnsins, heimilið, skólann og námið, vinahópinn, tómstundir og tölvunotkun kemur iðulega í ljós við hvaða aðstæður það er kvíðið eða líður illa og á hvaða sviði í lífinu því líður vel og er sátt. Í langflestum tilfellum hefur komið í ljós að rekja má vanlíðan barna sem leita til sálfræðings til einhverra megin þátta í umhverfinu ýmist þátta tengdum fjölskyldunni, námi/námsgetu eða samskiptum í vinahópnum. Það er hlutverk sálfræðingsins að benda foreldrum og barni á hvaða leiðir eru færar til lausna. Leiðir til lausna fela í sér breytingar eða aðlaganir. Stundum er nauðsynlegt að grípa til nánari greiningar á umhverfisþáttum eða á styrkleikum og veikleikum barnsins til að hægt sé að aðlaga umhverfið betur að þörfum þess. Í langflestum tilfellum finnast viðeigandi lausnir fyrir barnið sem bætir líðan þess og/eða aðstæður. Þess vegna er starf sálfræðings svo gefandi og skemmtilegt.Börn sem eru kvíðin og óörugg að eðlisfariBörn sem eru ofurvarkár og kvíðin að eðlisfari upplifa sig oft óörugg jafnvel í aðstæðum þar sem þau eru sátt í. Þetta eru börnin sem eiga það til að ofhugsa hlutina og eru hrædd innra með sér að eitthvað slæmt geti gerst. Þetta eru börnin sem hlusta á fréttir og fyllast kvíða þegar þau heyra af stríðsátökum og náttúruhamförum út í heimi því þau óttast að þetta geti gerst í nærumhverfi þeirra. Sum börn sem glíma kvíða, hræðslu og óöryggi efast einnig oft um eigin getu og hafa jafnvel neikvæðar hugsanir um sjálfa sig.Sjálfsstyrking og lausnarmiðuð hugsunStór hluti af vinnu sálfræðings með börnum er að efla og styrkja sjálfsmat þeirra og hjálpa þeim að endurmeta og leiðrétta neikvæðar hugsanir og ranghugmyndir. Við val sálfræðiaðferðar er tekið mið af vandanum, aldri og þroska. Stuðst er við aðferðir hugrænnar nálgunar (HAM) eftir því sem barnið hefur þroska og aldur til. Áhersla sálfræðings er að kenna börnum að hugsa í lausnum því enginn fer í gegnum lífið án þess að mæta mótbyr. Vandamál, hvort sem þau eru stór eða smá, verða á vegi allra einhvern tíma á lífsleiðinni. Innleiða þarf hjá börnum trú og vissu um að enginn vandi sé svo stór að ekki séu á honum lausn og að engin slæm líðan eða ástand vari að eilífu. Börn þurfa að vita að þau hafi alltaf eitthvað val. Ávallt er áréttað mikilvægi þess að þau tali um mál sín við foreldra sína eða einhvern fullorðinn sem þau treysta.Börn og tölvunotkun/samfélagsmiðlar Fræðsla, þar með talin forvarnarfræðsla, er stór hluti meðferðarvinnu sálfræðings með börnum og foreldrum þeirra. Dæmi um mikilvæga forvarnarfræðslu er að kenna börnum hvernig þau skuli umgangast netið. Foreldrum eru einnig veittar leiðbeiningar og ráðgjöf til að mynda hvaða reglur er nauðsynlegt að hafa á heimilinu og hvernig setja skuli börnum mörk um hegðun og samskipti. Langflestir unglingar verja umtalsverðum tíma á samfélagsmiðlum og þá oft í gegnum farsíma. Draga má þá ályktun að óhóflegur tími á samfélagsmiðlum, í tölvuleikjum eða við áhorf sjónvarpsþátta komi niður á svefntíma þeirra og auki kvíða. Börn sem verja mörgum tímum á sólarhring fyrir framan skjá eru verr í stakk búin til að mæta verkefnum og kröfum daglegs lífs. Þegar foreldrar nefna of mikla tölvunotkun barna sinna sem hluta af vandamáli þeirra eru foreldrar og börn ekki endilega sammála um hvort um vandamál sé að ræða. Fyrir barn sem er vant mikilli skjánotkun er erfitt að hugsa til þess að til standi að draga úr henni sérstaklega ef barnið hefur um langan tíma haft óheftan og jafnvel eftirlitslausan aðgang að tölvu/neti. Í öðrum málum eru foreldrar ekki meðvitaðir um mikla netnotkun barna sinna og hversu miklum tíma þau verja til að mynda á samfélagsmiðlum. Best er ef foreldrar og börn geta komið sér saman um sem flesta hluti og þar á meðal skjátíma. Ef ekki næst samkomulag eru það foreldrarnir sem ráða. Svo virðist sem algengt sé að börn/unglingar hafi óheftan og stundum eftirlitslausan aðgang að skjá og neti. Í þessum tilfellum eru foreldrar hvattir til að setja viðeigandi mörk með því að koma á reglu um tölvunotkun. Einnig eru foreldrar ávallt hvattir til að fylgjast vel með hvaða síður á netinu unglingar þeirra eru að skoða og kenna þeim jafnframt að umgangast netið og samfélagsmiðla af varúð. Almennt séð eru foreldrar þakklátir fyrir ábendingar og ráðgjöf af þessu tagi. Margir upplifa nefnilega vanmátt og óöryggi í þessum efnum og eru ekki vissir um hvort þeir geti sett börnum sínum mörk og þá hvernig mörk best sé að setja. Foreldrar sem eru óöruggir með þessi mál eru hvattir til að leita sér ráðgjafar hjá fagaðilum. Höfundur er sálfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Kolbrún Baldursdóttir Mest lesið Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar Skoðun Bændur á bremsunni Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? skrifar Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun