Erlingur: Vanmetum stundum okkar eigin deild Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. mars 2018 07:00
Erlingur Richardsson segir að það sé gott starf unnið í íslenskum handbolta og að ungir leikmenn þurfi ekki endilega að fara út fyrir landsteinana til að verða betri leikmenn. Erlingur, sem tók við landsliði Hollands í haust, fékk það verkefni að koma því í umspil um sæti á HM 2019. Það tókst en liðið mætir silfurliði Svía frá EM í Króatíu í umspilinu í júní. „Það er nokkuð stórt verkefni fyrir okkur enda erfiðasta liðið sem var í pottinum. Það er engu að síður áhugavert og spennandi verkefni,“ sagði Erlingur í samtali við Guðjón Guðmundsson í Sportpakkanum í gær. Erlingur hefur átt góðan þjálfaraferil. Eftir að hann varð Íslandsmeistari sem þjálfari HK árið 2012 hélt hann til Austurríkis þar sem hann tók við Westwien. Eftir það stýrði hann Füchse Berlin sem varð tvívegis heimsmeistari félagsliða undir hans stjórn. Hann segir að Olísdeildin sé sterkari en margan ef til vill grunar og er ánægður með tímabilið í ár. „Deildin er virkilega skemmtileg. Hún er að mestu samansett af ungum leikmönnum og ég held að við séum að vanmeta deildina okkar. Það er ekki endilega alltaf lausnin fyrir ungu leikmennina að fara út til að verða betri,“ sagði hann og bætti við að þjálfun í öðrum löndum væri ekki endilega betri en hér á landi. Erlingur ræðir meðal annars í viðtalinu um þann varnarleik sem hann þróaði, fyrst með HK og svo ÍBV á sínum tíma, en það má sjá hér fyrir neðan.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira