Níu ára drengur skaut systur sína vegna tölvuleiks Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. mars 2018 08:36 Ekki er vitað hvernig strákurinn varð sér úti um skammbyssuna. Vísir/AFp
Níu ára strákur í Mississippi í Bandaríkjunum er sagður hafa skotið þrettán ára systur sína til bana vegna tölvuleiks. Strákurinn er sagður hafa gripið byssu eftir að systir hans lét hann ekki fá stýripinna leikjatölvunnar á heimilinu. Fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins að hann hafi skotið hana í hnakkann og að byssukúlan hafi farið í gegnum heila hennar. Lögreglustjórinn í Memphis tilkynnti í gærkvöldi að stúlkan hafi látist af sárum sínum á sjúkrahúsi í borginni. Ekki er vitað á þessari stundu hvernig drengurinn varð sér úti um byssuna og óljóst er hvaða refsingu drengurinn á yfir höfði sér. Móðir barnanna var í öðru herbergi þegar hún heyrði skothljóðið en hún hafði verið að gefa systkinum þeirra að borða þegar óhappið varð. Lögreglan rannsakar nú málið og þá ekki síst hvernig drengurinn nálgaðist skammbyssuna sem hann notaði til verksins. „Þetta eru ókannaðar slóðir fyrir okkur. Við höfum aldrei þurft að eiga við níu ára barn sem skýtur annað barn,“ er haft eftir lögreglustjóranum.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Sjá meira