Lífið

Íslandi spáð hraksmánarlegri útreið í Eurovision

Jakob Bjarnar skrifar
Ari Ólafsson á sviði í úrslitum Söngvakeppninnar í Laugardalshöll í kvöld.
Ari Ólafsson á sviði í úrslitum Söngvakeppninnar í Laugardalshöll í kvöld. RÚV
Íslenskir Eurovision-aðdáendur eru hugsanlega að vakna upp við vondan draum. Our Choice með hinum afar geðþekka Ara Ólafssyni, framlag okkar til söngvakeppninnar einu sönnu, er ekki hátt skrifað í veðbönkum.

RÚV, sem stendur að og heldur utan um þátttöku Íslands í keppninni, sem fram fer í Portúgal 8. til 12. maí, greinir frá þessu nú í morgun. Jóhann Hlíðar fréttamaður reynir þó að hugga lesendur sína með því að benda á að rétt sé að taka fram að „líkur veðbanka geta tekið stórfelldum breytingum á þeim tæpu tveimur mánuðum sem eru til keppninnar“.

Felix Bergsson er yfirmaður Eurovisionmála Ríkisútvarpsins en nú stefnir því miður í að íslenski hópurinn sé að fara sneypuför til Portúgal.visir/heiða
En, á Eurovisionworld.com er saman dregið hvaða líkur liggja til grundvallar 14 veðbönkum, sé litið til hvers lands um sig og samanlagt er Ísland í 43. og neðsta sæti keppninnar. Af þessum 14 veðbönkum eru 11 sem setja Ara okkar Ólafsson og Our Choice í neðsta sæti. Ísrael, sem oft hefur vegnað vel í þessari keppni, er með sterkt framlag að mati sérfróðra veðbankamanna og er þeim spáð sigri nú með lagi sem heitir Toy í flutningi Netta Barzilai.

„Eistland og Tékkland koma svo í 2. og 3. sæti. Af lögum Norðurlanda stendur það sænska best að vígi, það er í 7. sæti.,“ segir í frétt RÚV.

Vísir reyndi að ná tali af Felix Bergssyni, sem er yfirmaður Eurovision-mála hjá Ríkisútvarpinu, til að bera undir hann þessa skelfilegu stöðu en án árangurs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.