Stukku fram af svölum til að sleppa undan eldhafi Kristín Ólafsdóttir skrifar 10. apríl 2018 22:58 Stúlkurnar virtust hætt komnar í myndbandi af atvikinu. Betur fór en á horfðist. Vísir/Skjáskot
Mikil mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar eldur kviknaði í danssal í bænum Edgewater í New Jersey-ríki í Bandaríkjunum í gær. Nokkrar stúlkur, sem voru í salnum þegar eldurinn kviknaði, þurftu að láta sig falla fram af svölum byggingarinnar til að komast lífs af úr eldhafinu. Samkvæmt frétt BBC héldu viðbragðsaðilar að búið væri að rýma bygginguna þegar einhverjir þeirra urðu varir við stúlkurnar, sem þá voru fastar inni í danssalnum. Í myndbandi af vettvangi sjást vegfarendur hrópa til stúlknanna og biðja þær að brjóta rúðu til að komast út. Nokkrar stúlknanna þurftu þó á endanum að fara út á svalir byggingarinnar og láta sig falla til jarðar úr töluverðri hæð. Stúlkurnar komust allar óhultar út, að því er segir í frétt BBC, og þá slasaðist engin þeirra alvarlega. Eldsupptök eru ókunn.Myndband af atvikinu má sjá í spilaranum hér að neðan.
Mest lesið Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Innlent Fleiri fréttir Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Sjá meira