Lífið

Áfellisdómur Eyfa og Siggu Beinteins: „Algjörlega steindautt“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hópur Íslands á sviðinu í Lissabon í gærkvöldi.
Hópur Íslands á sviðinu í Lissabon í gærkvöldi. Vísir/Getty
Reynsluboltarnir Eyjólfur Kristjánsson og Sigríður Beinteinsdóttir segja Ara Ólafsson hafa staðið sig vel á sviðinu í Lissabon í gærkvöldi þótt framlag Íslands, Our Choice, hafi ekki komist áfram í úrslitin.

Þau eru hins vegar sammála að atriði Íslands hafi verið steindautt og ekkert að gerast.

„Hann stóð sig frábærlega en ég er persónulega ekki hrifin af því hvernig þau sviðsettu atriðið. Það var ekkert að gerast þarna,“ segir Sigga sem var í fararbroddi fyrir Ísland í Eurovision á tíunda áratugnum. Hafnaði í fjórða sæti 1990 og sjöunda sæti tveimur árum síðar.

Sigga Beinteins er reynslubolti þegar kemur að Eurovision. Henni fannst atriðið steindautt.Vísir/Ernir

Meiri hreyfing hjá Stebba og Eyva 1991

Eyfi tók undir með Siggu en þau voru gestir í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Ari hefði sýnt á sviðinu að ekkert væri að trufla hann, pilturinn kynni að syngja og Þórunn Erna Clausen að semja lög.

„Hann var algjörlega „blanco“ þessi performans. Ekki söngurinn heldur fyrir augað. Það gerðist bara ekki neitt,“ segir Eyfi.

Bakraddirnar hafi gengið til Ara í lok atriðisins sem var Eyfa ekki að skapi. „Þau hefðu mátt sleppa því.“

„Það var engin grafík,“ sagði Sigga.

Greinilegt að þau Eyfi voru allt annað en sátt við nýtinguna á sviðinu og hreyfingarleysið. 

Ari Ólafs ræddi gærkvöldið í viðtali við Vísi að keppninni lokinni.

„Þau ætluðu að nota andlitið hans mikið. Það var mikið af close-up skotum,“ segir Sigga. Sum skotin hafi verið óþægilega nálægt Ara.

„Ég held þau hafi bara ákveðið að gera ekki neitt,“ segir Eyfi. Allt skipti máli þessar þrjár mínútur.

„Það var meiri hreyfing á okkur Stebba 1991,“ sagði Eyfi. „Þetta var algjörlega steindautt.“

Stebbi og Eyvi í Nínugöllunum sínum.Vísir/Vilhelm

Fannst vanta karl í kynningarteymið

Aðspurð hver beri ábyrgð bendir Sigga á íslenska teymið. Þar fara fremst í flokki lagahöfundurinn Þórunn Erna Clausen, leikstjórinn Arnór Pálmi Arnarsson og framleiðandinn Ragnar Santos.

Sigga var sömuleiðis ekki hrifin af kynnum kvöldsins sem hafi misst sig í fimmaurabröndurum sem enginn hafi hlegið að. Þá saknaði Eyfi þess að það væri karl í kynningateyminu sem fjórar konur skipuðu.

Þau voru sammála um að í Ara Ólafssyni væri að finna frábæran söngvara sem ætti framtíðina fyrir sér.

Gagnrýni Eyfa og Siggu í Bítinu má heyra í klippunni hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.