Gibson hefur verið skuldum vafið eftir misheppnaðar yfirtökur á raftækjaframleiðendum í von um að með því væri hægt að renna frekari stoðum undir rekstur fyrirtækisins, sem frá árinu 1894 hefur að mestu einbeitt sér að framleiðslu hljóðfæra.
Fyrirtækið er best þekkt fyrir rafmagnsgítara sína sem framleiddir eru í verksmiðjum Gibson í Bandaríkjunum. Elvis Presley, Neil Young, Jimmy Page, Jimi Hendrix og Eric Clapton eru meðal þeirra sem skartað hafa gítörum frá Gibson.
Í frétt Financial Times segir að með því að óska eftir gjaldþrotameðferð geti fyrirtækið starfað áfram en á sama tíma losað sig við þá hluta starfseminnar sem ekki hafa staðið undir væntingum, en rekja má erfiðleika fyrirtækisins að mestu til skuldsettar yfirtöku á hluta af raftækjaframleiðslu Phillips-samstæðunnar árið 2014.
Mun Gibson nú leggja áherslu á kjarnastarfsemi sína, framleiðslu og sölu á hljóðfærum en sú starfsemi hefur gengið vel undanfarin ár. Til að mynda seldi Gibson 170 þúsund gítara á síðasta ári í yfir 80 löndum.
Hér að neðan má sjá yfirferð yfir sögu Gibson Les Paul rafmagnsgítarsins og þar fyrir neðan má sjá tónlistarmanninn Eric Clapton ræða um Les Paul gítar í sinni eigu.