„Þetta er mjög spennandi verkefni enda eru bækur Vilborgar um Auði gríðarlega áhugaverðar og vel skrifaðar. Þrátt fyrir að sögurnar gerist fyrir rúmlega ellefu hundruð árum þá varpa þær ljósi á margt sem samtíminn er að glíma við, til dæmis kúgun kvenna, átök vegna ólíkra trúarbragða og stríð sem veldur því að fólk þarf að flýja heimili sín og land í von um að finna öryggi og skjól á nýjum stað. Að skoða þessa hluti í gegnum víkingadrama er mjög áhugavert og gefur okkur tækifæri til að sjá samfélag okkar í dag í nýju ljósi. Bækurnar hafa allt, en í grunninn fjalla þær um konu sem rís upp gegn mótbyr og kúgun og sem endar sem einn fremsti landneminn. Þetta er kynslóðin sem lagði grunninn að samfélagi á Íslandi," segir Bjarni Haukur í tilkynningu vegna kaupanna. Kaupverðið er ekki gefið upp.

„Hér er um víkingaseríu að ræða þar sem sagan er sögð út frá sjónarhóli konu. Það hafa verið gerðar svo margar víkingaseríur um karla, nú er komið að því að gera þetta út frá konunni og hver er betur til þess fallin en hún Auður?“
Bjarni telur líklegast að þættirnir verði teknir upp á ensku en ekki liggur fyrir hvar þættirnir verða sýndir.
,Þessi kona á engan sinn líka í landnámssögu Íslands. Þó er hún ekki sú eina, fleiri konur komu til Íslands og námu hér land en saga hennar er einstök á svo margan hátt. Ekki síst fyrir það að hún er kristin og gefur þrælum sínum frelsi og jarðnæði þegar hún kemur til Íslands. Það er einstakt,“ sagði Vilborg í viðtali í Fréttablaðinu á dögunum.