Í viðtölum við fjölmiðla í Bandaríkjunum hefur Peterson beðist afsökunar en hann segist ekki hafa verið hræddur. Það hafi ekki verið ástæðan fyrir því að hann fór ekki inn í bygginguna þar sem Cruz myrti fólkið.
Peterson segir að ástæðan hafi verið sú að hann vissi ekki hvar Cruz væri og taldi hann að leyniskytta væri að skjóta.
„Þetta voru krakkarnir mínir. Ég myndi aldrei sitja þarna og leyfa krökkunum mínum að vera slátrað. Aldrei,“ sagði Peterson í samtali við NBC.
Eftir að lögreglan birti upptökur úr öryggismyndavélum, þar sem Peterson sást fara í skjól fyrir utan bygginguna, var hann titlaður „heigullinn frá Browar“, eða „Coward from Broward“, þar sem skólinn er í Broward-sýslu. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, gagnrýndi Peterson opinberlega og sagði hann vera heigul. Trump sagði að ef hann hefði sjálfur verið á vettvangi hefði hann farið inn í bygginguna, jafnvel þó hann væri óvopnaður.
Hélt að um leyniskyttu væri að ræða
Hann segist hafa rokið af stað um leið og tilkynning um skothljóð barst og á leiðinni á vettvang hafi hann heyrt fleiri skot sem hann taldi koma frá leyniskyttu. Því leitaði hann sér skjóls og kallaði í talstöð sína að lögregluþjónar ættu að halda sig frá staðnum.
Peterson segist ekki hafa talið að árásarmaðurinn væri inni að myrða nemendur og starfsmenn, þrátt fyrir að árásir sem slíkar séu orðnar einkar algengar í Bandaríkjunum og að hann hafði verið þjálfaður í að bregðast við slíkum árásum. Sömuleiðis sýna upptökur að Peterson sagði í talstöð sína að hann heyrði skothríð „við, inn í húsinu“.
Þegar hann kom á vettvang hafði Cruz þegar myrt ellefu manns á jarðhæð hússins og fór hann upp á þriðju hæð þar sem hann myrti sex til viðbótar.
Peterson segist aldrei hafa heyrt fleiri skot.
Peterson sagði einnig að hann óskaði þess að geta talað við fjölskyldur þeirra sem dóu og útskýrt mál sitt.
Hann var sömuleiðis í viðtali hjá Washington Post þar sem hann kemst að þeirri niðurstöðu að hann hefði lítið getað gert til að bjarga lífum.
Foreldrar ekki sáttir
Foreldrar nemenda sem voru myrtir hafa þó ekki tekið vel í afsökunarbeiðni Peterson. Blaðamenn Miami Herald ræddu við nokkra foreldra.
„Ég er þreyttur á því að hann sé að mála sig sem fórnarlamb,“ sagði Fred Guttenberg, faðir hinnar fjórtán ára gömlu Jaime Guttenberg. „Hann er ekki fórnarlamb. Hann bjó til fórnarlömb. Hann talar um þau sem sýna krakka. Þau voru ekki þínir krakkar, Scot Peterson. Þú leyfðir þeim að deyja!“
Guttenberg sagði einnig að ef Peterson hefði unnið starfið sitt hefðu þeir sem voru myrtir á þriðju hæðinni aldrei dáið.
„Þetta fólk sem dó, þar á meðal dóttir mín, eru fórnarlömb vanhæfni hans til að vinna vinnuna sína.“ Guttenberg skoraði á Peterson að hitta sig í persónu.
Annar maður sem rætt var við sagðist vera alveg sama þó Peterson segist eiga bágt.
„Ég skil ekki hvernig hann getur haldið því fram að hann hafi unnið vinnuna sína. Hann gerði ekki neitt. Hann stóð fyrir utan. Hann vissi að gaurinn var inni að drepa börnin okkar. Þetta er kjaftæði,“ sagði Max Schachter. „Hann olli í rauninni fleiri dauðsföllum með því að segja lögregluþjónum að fara ekki þarna inn. Það ætti að ákæra hann.“
Einn af nemendum skólans, Morgan Williams, greip til Twitter í gær þar sem hún sagðist ekki ætla að lesa viðtöl við Peterson. Sama hvað hann segði þá væri hann heigull.
I don't care what that article says. Scot Peterson is a fucking coward. He was scared? So was I and everyone else inside that building. While I had to run across my classroom and hid from the shooter, he stood outside and did nothing. He gets absolutely no sympathy from me.
— Morgan Williams #NEVERAGAIN (@morganw_44) June 4, 2018
Peterson keeps saying we're “his kids”. If that was the case, he would have done something to protect us. He waited outside while Hixon ran in, UNARMED, to try and help us. Hixon showed how much he truly cared about us that day and for that he will always be one of my heroes.
— Morgan Williams #NEVERAGAIN (@morganw_44) June 4, 2018