Létust við sjálfsmyndatöku Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. júní 2018 06:57 Ericeira er vinsæll viðkomustaður á vesturströnd Portúgals. Vísir/getty
Karl og kona létust þegar þau reyndu að taka sjálfsmynd á vinsælum ferðamannastað í Portúgal. Talið er að fólkið hafi misst jafnvægið er það hallaði sér afturábak til að ná góðri mynd af ströndinni fyrir neðan. Portúgalskir miðlar segja að parið, sem talið er vera frá Bretlandi og Ástralíu, hafi látið lífið nærri ströndinni Praia dos Pescadores, eða Sjómannaströndinni svokölluðu, við ferðamannabæinn Ericeira. Bærinn er þekktur fyrir fallegar stendur og því vinsælt myndefni þeirra þúsunda ferðamanna sem fara um vesturströnd landsins á hverju ári. Haft er eftir talsmanni björgunarsveitanna að þær telji nokkuð ljóst að parið hafi dottið aftur fyrir sig og yfir vegg sem á að varna því að slíkt geti gerst. Farsími sem fannst ofan á veggnum gefi til kynna að þau hafi verið að taka sjálfsmynd. Talið er að þau hafi hrapað um 30 metra og líklega látist samstundis þegar þau lentu á ströndinni fyrir neðan. Lík þeirra fundust í gærmorgun. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ferðamenn hafa hrapað til dauða á þessu svæði. Stjórnvöld kanna nú hvernig auka megi öryggið á svæðinu.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Sjá meira