Unglingur handtekinn vegna morðsins Stefán Ó. Jónsson skrifar 5. júlí 2018 06:59 Lýst var eftir Aleshu MacPhail á mánudag. Facebook
Unglingspiltur hefur verið handtekinn í tengslum við rannsóknina á andláti stúlkunnar Aleshu MacPhail. Lík hennar fannst í rústum gistiheimilis á skosku eyjunni Bute. Greint frá því í gær að andlát hennar væri rannsakað sem morð.Lögreglan segir að rannsókn málsins sé enn í fullum gangi og biðlar hún til sjónarvotta að gefa sig fram. Hún vill lítið gefa upp um handtökuna, annað en að um sé að ræða dreng sem ekki hefur náð 18 ára aldri. Að sama skapi lýsir hún handtökunni sem „mikilvægum áfanga“ í rannsókn málsins. Fyrstu fregnir af hvarfi hinnar sex ára gömlu MacPhail bárust á mánudagmorgun þegar amma hennar birti færslu á Facebook þar sem hún lýsti eftir henni. Hófst þá mikil leit og fannst líkið um tveimur og hálfum tíma síðar í rústunum sem er að finna í skóglendi í um tuttugu mínútna fjarlægð frá húsi föðurforeldra hennar, þar sem hún dvaldi ásamt föður sínum. Fjölmennt lið lögreglu er nú á eyjunni til að aðstoða við rannsókn málsins. Fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins að viðbrögð almennings við málinu hafi verið mikil. Fjölmargar ábendingar hafi borist lögreglu en enn sé ýmsum spurningum ósvarað. Lögreglan biðlar því til allra, ekki síst þeirra sem búa yfir upptökum úr öryggismyndavélum, að gefa sig fram svo að leysa megi málið.
Tengdar fréttir Minnast sex ára stúlku sem fannst látin í hótelrústum Fyrstu fregnir af hvarfi stúlkunnar bárust á mánudag þegar amma hennar birti færslu þess efnis á Facebook. Voru notendur samfélagsmiðilsins beðnir um að hjálpa til við leitina að MacPhail. 3. júlí 2018 15:46 Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira
Minnast sex ára stúlku sem fannst látin í hótelrústum Fyrstu fregnir af hvarfi stúlkunnar bárust á mánudag þegar amma hennar birti færslu þess efnis á Facebook. Voru notendur samfélagsmiðilsins beðnir um að hjálpa til við leitina að MacPhail. 3. júlí 2018 15:46