Klifraði upp á Frelsisstyttuna til að mótmæla innflytjendastefnu Trump Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. júlí 2018 23:28 Konan sést hér undir hægri fæti styttunnar á meðan lögreglumenn reyna að fá hana til að koma niður. vísir/ap
Kona tók sig til og klifraði upp á Frelsisstyttuna í New York í dag, 4. júlí, á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, til að mótmæla innflytjendastefnu Donalds Trump, Bandaríkjaforseta. Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna mótmæla konunnar og var Liberty Island, eyjan sem styttan stendur á, rýmd vegna konunnar. Lögreglan reyndi fyrst að semja við hana um að koma niður af styttunni en hún sat sem fastast þar sem hún hafði komið sér fyrir, við fætur styttunnar. Það tók lögregluna svo tvo klukkutíma að komast að konunni og taka hana höndum. Að minnsta kosti sex aðrir mótmælendur voru handteknir við styttuna í dag þar sem þeir höfðu hengt upp fána neðst við styttuna með skilaboðum um að leggja niður útlendingastofnun Bandaríkjanna. Bæði þau mótmæli sem og mótmæli konunnar eru tilkomin vegna harðlínustefnu Trump í innflytjendamálum sem meðal annars varð til þess að börn voru aðskilin frá foreldrum sínum á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Frelsisstyttan stendur á eyju í New York-höfn, suður af Manhattan. Styttan var gjöf frá Frökkum til Bandaríkjamanna. Hún var afhjúpuð árið 1886 og bauð innflytjendur velkomna til Bandaríkjanna þar sem hún var það fyrsta sem þeir sáu áður en þeir stigu á land í Ellis Island.
Aðskilnaður barna og foreldra í Bandaríkjunum Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira