Brutu á 12 ára stúlku í rúmt hálft ár Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. júlí 2018 06:59 Mikil vitundarvakning hefur orðið á Indlandi í kynferðisbrotamálum í kjölfar ítrekaðra fregna af hrottalegum nauðgum. Vísir/getty
Sautján indverskir karlar hafa verið ákærðir fyrir að hafa ítrekað brotið kynferðislega á 12 ára stúlku á sjö mánaða tímabili. Mennirnir eru sagðir hafa starfað í íbúðablokkinni þar sem stúlkan bjó; ýmist sem öryggis- eða lyftuverðir og pípulagningamenn. Mennirnir, sem eru á aldrinum 23 til 66 ára, eru sagðir hafa byrlað stúlkunni og flutt hana rænulausa í tómar íbúðir í blokkinni þar sem þeir brutu á henni. Þarlendir miðlar segja jafnframt að brotin hafi átt sér stað í kjallara, í garði blokkarinnar, á almenningssalernum og í líkamsræktarstöð. Brotin eru talin hafa verið tekin upp á myndband. Stúlkunni var tjáð að ef hún segði frá brotunum myndu mennirnir hlaða myndböndunum upp á netið og koma þeim í dreifingu. Þar að auki eru þeir taldir hafa hótað henni lífláti. Upp komst um málið um helgina þegar stúlkan tjáði systur sinni frá brotunum. Mennirnir voru handteknir á mánudag og hafa þeir verið ákærðir fyrir nauðganir, morðtilraunir og hótanir. Að meðaltali var tilkynnt um rúmlega 100 nauðganir á Indlandi á hverjum einasta degi árið 2016, þar af voru sex þolendur undir 12 ára aldri. Hrottalegt nauðgunarmál í upphafi árs varð til þess að refsingar í málaflokknum voru þyngdar. Nú geta einstaklingar sem nauðga börnum átt von á því að vera teknir af lífi. Í skýrslu Thomson Reuters-stofnunarinnar, sem kynnt var í síðasta mánuði, kom fram að hvergi í heiminum er verra að vera kona en á Indlandi.
Tengdar fréttir Morðhrina vegna orðróms á samfélagsmiðlum Indverska lögreglan hefur handtekið 16 einstaklinga í tengslum við morð á tveimur mönnum í norðausturhluta landsins. 11. júní 2018 08:03 Bandaríkin tíunda hættulegasta land heims fyrir konur Indland er hættulegasta land heims fyrir konur samkvæmt nýrri samantekt Thomson Reuters. 26. júní 2018 16:02 Dauðarefsing við nauðgunum á Indlandi Ríkisstjórn Indlands hefur samþykkt dauðarefsingu fyrir nauðgara sem hafa nauðgað stúlkum yngri en 12 ára. Á sama tíma var lágmarksrefsing fyrir nauðganir hækkuð. 21. apríl 2018 22:04 Þrjár klukkustundir af hópnauðgun á Indlandi Þessi grimmúðlega árás er ein af fjölmörgum sem hefur átt sér stað á Indlandi og komið hefur illa við samvisku samfélagsins 23. júní 2018 23:55 Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira
Morðhrina vegna orðróms á samfélagsmiðlum Indverska lögreglan hefur handtekið 16 einstaklinga í tengslum við morð á tveimur mönnum í norðausturhluta landsins. 11. júní 2018 08:03
Bandaríkin tíunda hættulegasta land heims fyrir konur Indland er hættulegasta land heims fyrir konur samkvæmt nýrri samantekt Thomson Reuters. 26. júní 2018 16:02
Dauðarefsing við nauðgunum á Indlandi Ríkisstjórn Indlands hefur samþykkt dauðarefsingu fyrir nauðgara sem hafa nauðgað stúlkum yngri en 12 ára. Á sama tíma var lágmarksrefsing fyrir nauðganir hækkuð. 21. apríl 2018 22:04
Þrjár klukkustundir af hópnauðgun á Indlandi Þessi grimmúðlega árás er ein af fjölmörgum sem hefur átt sér stað á Indlandi og komið hefur illa við samvisku samfélagsins 23. júní 2018 23:55