Lífið

Hundrað milljónir fyrir mynd á Instagram

Sylvía Hall skrifar
Kylie er ein vinsælasta Kardashian/Jenner systirin.
Kylie er ein vinsælasta Kardashian/Jenner systirin. Mynd/Getty
Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner trónir á toppnum yfir þær stjörnur sem þéna hvað mest fyrir Instagram-myndir sínar sem birtar eru í samstarfi við fyrirtæki.

Jenner, sem er tvítug að aldri, fær rúmlega hundrað milljónir króna fyrir myndir þar sem hún auglýsir hinar ýmsu vörur og deilir þeim með fylgjendum sínum sem eru nú 111 milljónir talsins. Hún þénar tuttugu milljónum meira en forveri sinn á toppnum sem er söng- og leikkonan Selena Gomez.

Meðal þeirra íþróttamanna sem einnig eiga sæti á listanum er fótboltamaðurinn Cristiano Ronaldo, en hann situr í þriðja sæti listans með þokkalegar 75 milljónir fyrir hverja færslu. Þá er Kim Kardashian West í fjórða sæti listans með 72 milljónir.

Listann í heild sinni má sjá hér að neðan, en þar má sjá fylgjendafjölda og upphæð fyrir hverja samstarfsfærslu:

1. Kylie Jenner: 111 milljónir fylgjenda – 105,7 milljónir króna

2. Selena Gomez: 139 milljónir fylgjenda – 84,6 milljónir króna

3. Cristiano Ronaldo: 137 milljónir fylgjenda – 79,3 milljónir króna

4. Kim Kardashian West: 114 milljónir fylgjenda – 76,1 milljónir króna

5. Beyonce Knowles: 116 milljónir fylgjenda – 73,9 milljónir króna

6. Dwayne Johnson: 111 milljónir fylgjenda – 68,7 milljónir króna

7. Justin Bieber: 101 milljónir fylgjenda – 66,6 milljónir króna

8. Neymar da Silva Santos Junior: 100 milljónir fylgjenda – 63,4 milljónir króna

9. Lionel Messi: 97 milljónir fylgjenda – 52,8 milljónir króna

10. Kendall Jenner: 93 milljónir fylgjenda – 52,8 milljónir króna


Tengdar fréttir

Dýrt tíst frá Kylie Jenner

Gengi bréfa í tæknifyrirtækinu Snap hrundi í gær eftir að raunveruleikastjarnan Kylie Jenner fór ófögrum orðum um nýjustu uppfærsluna á samfélagsmiðlinum Snapchat.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.