Börn sprautuð með gölluðu bóluefni Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. júlí 2018 06:21 Óttast er að börn kunni að veikjast eftir að hafa verið bólusett með efninu. Vísir/getty
Kínversk stjórnvöld hafa farið fram á rannsókn á bóluefni við hundaæði eftir að í ljós kom að framleiðandi efnisins hafði falsað gögn um framleiðsluna. Málið hefur vakið mikla reiði í Kína en framleiðsla efnisins hefur nú verið stöðvuð og unnið er að því að innkalla alla selda skammta. Ekki hafa enn borist neinar fregnir af skaðsemi bóluefnisins en í samtali við þarlenda fjölmiðla hafa kínverskir ráðamenn lýst mikilli óáængju með blekkingarleik fyrirtækisins. Þeir heita því að stjórnarmenn þess verði sóttir til saka og dæmdir til þyngstu refsingar. Hundaæðislyfið er niðurgreitt af þarlendum stjórnvöldum og er öllum nýbökuðum foreldrum gert að bólusetja börn sín með efninu. Ekki er vitað hversu mörg börn voru sprautuð með hinu gallaða efni en ekkert barn er þó talið hafa veikst vegna þess. Þá kom einnig í ljós á dögunum að annað bóluefni fyrirtækisins, sem framleitt var í fyrra, uppfyllti ekki staðla kínverska matar- og lyfjaeftirlitsins. Alls höfðu um 250 þúsund skammtar af lyfinu verið seldir áður en upp komst um málið. Fyrirtækinu hefur verið gert að greiða sekt sem nemur 3,4 milljónu yuan, eða rúmlega 50 milljónum króna.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira