Höfðu hendur í hári lýtalæknisins Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. júlí 2018 06:30 Denis Furtado er sagður hafa ekið í gegnum veghlið þegar hann reyndi að stinga lögregluna af. Vísir/AP
Lögreglan í Rio de Janeiro hefur handtekið þekktan lýtalækni eftir að einn skjólstæðinga hans lést um liðna helgi. Konan er sögð hafa veikst hratt eftir að læknirinn, Denis Furtado, hafði stækkað á henni afturendann á skurðstofu á heimili sínu. Konan var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést örfáum klukkustundum eftir aðgerðina. Brasilíska lögreglan fékk nafnlausa ábendingu um að til læknisins hefði sést í verslunarmiðstöð í borginni. Lögreglumenn voru sendir á vettvang og tókst þeim að hafa hendur í hári Furtado, sem gengur undir gælunafninu Dr. BumBum í heimalandinu.Sjá einnig: Þekktur lýtalæknir í Brasilíu eftirlýstur vegna dauða konu sem lét stækka afturenda sinnMóðir læknisins var einnig handtekin og birti lögreglan mynd af mæðginunum á Twitter-síðu sinni. Ekki er vitað til þess að hún tengist andlátinu með beinum hætti en hún er sögð hafa verið með lækninum þegar hann var handtekinn. Þá er kærasta mannsins, sem einnig er ritari hans, í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið. Talið er að hún hafi aðstoðað við fegrunaraðgerðina.A mãe do médico também foi presa pelos policiais do #31BPM. pic.twitter.com/fHmloTZ8y0— PMERJ (@PMERJ) July 19, 2018 Læknirinn er afar þekktur í Brasilíu en hann kemur reglulega fram í sjónvarpi og er með tæplega 650 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlinum Instagram. Í myndbandi sem hann birti á miðvikudag kvartaði hann undan umfjölluninni og sagði að honum þætti hann órétti beittur. Brasilíska lýtalæknasambandið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem það tekur fram að Furtado sé ekki vottaður lýtalæknir.
Tengdar fréttir Þekktur lýtalæknir í Brasilíu eftirlýstur vegna dauða konu sem lét stækka afturenda sinn Dr. Bumbum lagði á flótta þegar honum var ljóst að konan var látin. 17. júlí 2018 23:19 Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira
Þekktur lýtalæknir í Brasilíu eftirlýstur vegna dauða konu sem lét stækka afturenda sinn Dr. Bumbum lagði á flótta þegar honum var ljóst að konan var látin. 17. júlí 2018 23:19