Tafl og tónaflóð Hróksins Jóhann Óli Eiðsson skrifar 7. ágúst 2018 06:00 Næsta ferð Hróksins til Grænlands verður í september, en þá mun félagið jafnframt slá upp stórmóti í Reykjavík í tilefni af 20 ára afmæli félagsins, en það var stofnað 12. september 1998.
Liðsmenn Hróksins hafa síðustu daga staðið fyrir hátíð á Austur-Grænlandi, þar sem búa næstu nágrannar Íslendinga. Byrjað var með hinni árlegu Air Iceland Connect-hátíð í Kulusuk, þar sem Hrafn Jökulsson tefldi við öll börn bæjarins, og tónlistarmennirnir Birkir Blær Ingólfsson og Jónas Margeir Ingólfsson töfruðu alla upp úr skónum. Samkvæmt tilkynngu Hróksins fengu öll börnin í Kulusuk gjafir og gleðin var allsráðandi, en frábærum degi lauk með æsispennandi fótboltaleik á splunkunýjum sparkvelli. Þaðan lá leiðin til Tasiilaq, sem er höfuðstaður Austur-Grænlands. Þar var slegið upp alhliða veislu í félagsheimilinu, þar sem Hrafn tefldi við tugi heimamanna á öllum aldri, meðan Birkir Blær og Jónas Margeir léku listir sínar. Fjölmargir komu að fylgjast með, og brustu sumir í dans undir tónaflóðinu meðan taflið stóð sem hæst. Sannarlega frábær hátíðardagur, til minningar um Gerdu Vilholm, heiðursfélaga Hróksins og máttarstólpa barnanna í Tasiilaq. Justus Hansen, þingmaður á grænlenska þinginu og Hróksliði með meiru, minntist Gerdu, sem lést í janúar á síðasta ári, í fallegri setningarræðu. Sigurvegari dagsins í minningarveislunni um Gerdu Vilholm var hin 10 ára gamla Anitse Kuitse, sem sat ein eftir þegar Hrafn hafði lokið öðrum skákum.Justus hefur lagt fram tillögu um að skák verði gerð að kennslugrein fyrir öll grunnskólabörn, og er búist við almennri samstöðu um málið, enda er skákin að skjóta sterkum rótum á Grænlandi eftir fimmtán ára starf Hróksins þar í landi. Sigurvegari dagsins í minningarveislunni um Gerdu Vilholm var hin 10 ára gamla Anitse Kuitse, sem sat ein eftir þegar Hrafn hafði lokið öðrum skákum. Hún fékk veglegan bikar að launum, og allir mótherjar Hrafns hlutu gullpeninga og önnur verðlaun í boði Kiwanis-klúbbsins Heklu. Sérstakra vinsælda nutu íslensku landsliðstreyjurnar, sem KSÍ lagði til, enda óhætt að segja að næstum hver einasti Grænlendingur haldi með strákunum okkar. Með þessum viðburði var botn sleginn í Polar Pelagic-hátíðina, sem hófst í Kulusuk í janúar. Þá öftruðu veðurguðir ferð Hróksliða frá Kulusuk til Tasiilaq, en sólin baðar nú hina fögru austurströnd Grænlands. Hróksliðar hafa jafnframt heimsótt vini sína á PITU, sem er heimili fyrir börn sem ekki geta dvalið hjá fjölskyldum sínum. Þar fengu börnin ýmsar góðar gjafir, m.a. föt og spjaldtölvur í boði Tölvulistans. Leiðin lá líka á dagheimili sem rekið er af góðgerðarsamtökum og þar var slegið upp stórtónleikum og gjafir afhentar. Börnin í Tasiilaq og Kulusuk nutu góðs af framlagi íslenskra prjónakvenna, ekki síst prjónahópnum í Gerðubergi, en þær hafa á síðustu árum nestað Hróksmenn með óteljandi gjafir til grænlenskra barna.
Birtist í Fréttablaðinu Grænland Norðurlönd Skák Tengdar fréttir Allir nemendur grunnskólans í Kulusuk tóku þátt í skákmóti 3. mars 2018 21:12 Forsætisráðherra drap biskup við skákborðið Forsætisráðherra drap biskup við Reykjavíkurhöfn í dag. Þó var aðeins um skákmann að ræða, en skákmaraþon Hróksins til styrktar börnum í Jemen hófst í morgun. 11. maí 2018 20:00 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira
Forsætisráðherra drap biskup við skákborðið Forsætisráðherra drap biskup við Reykjavíkurhöfn í dag. Þó var aðeins um skákmann að ræða, en skákmaraþon Hróksins til styrktar börnum í Jemen hófst í morgun. 11. maí 2018 20:00