Leiðtogi Donetsk ráðinn af dögum Samúel Karl Ólason skrifar 31. ágúst 2018 17:37 Alaxender Zakharchenko, leiðtogi aðskilnaðarsinna í Donetsk í austurhluta Úkraínu. Vísir/EPA
Alaxender Zakharchenko, leiðtogi aðskilnaðarsinna í Donetsk í austurhluta Úkraínu, var ráðinn af dögum í sprengjuárás á kaffihúsi í dag. Uppreisnarmenn segjast hafa handtekið Úkraínumenn nærri sem grunaðir eru um að hafa komið að árásinni. Zakarchenko bar titilinn forsætisráðherra lýðveldis Donetsk. Fjármálaráðherra Donetsk, Alexander Timofeyev, er sagður hafa særst í árásinni. Utanríkisráðuneyti Rússlands segir að grunur falli á ríkisstjórn Úkraínu í Kænugarði og kalla árásina „hryðjuverk“. Maria Zakharova, talskona ráðuneytisins, sagði ríkisstjórn Úkraínu vera bak við sprenginguna og að „stríðsflokkurinn“ í Kænugarði hefði svikið loforð sín um frið og þess í stað sæst á blóðsúthellingar.Rússar standa við bakið á aðskilnaðarsinnunum, sem hertóku stór svæði í Úkraínu árið 2014. Rúmlega tíu þúsund manns hafa fallið í átökunum síðan og rúmlega ein og hálf milljón manna hafa þurft að flýja heimili sín. Úkraínumenn segja mögulegt að andstæðingar Zakharchenko meðal aðskilnaðarsinna hafi fellt hann, eða hann hafi verið felldur af Rússum. Ríkisstjórn Úkraínu hefur haldið því fram að Rússar hafi fellt aðskilnaðarsinna sem neita að framfylgja skipunum þeirra.Fjölmiðlar í Úkraínu segja að um bílasprengju hafi verið að ræða en Zakharchenko lifði af slíka árás í ágúst 2014. Nokkrir leiðtogar aðskilnaðarsinna hafa verið ráðnir af dögum á undanförnum árum. Í október 2016 dó Arsen Pavlov þegar sprengja sprakk í lyftu í húsi hans. Þá dó Mikhail Tolstykh í febrúar í fyrra þegar eldflaug var skotið inn í skrifstofu hans.
Úkraína Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira