Lét ekki vita af slysasleppingu regnbogasilungs við Húsavík Birgir Olgeirsson skrifar 7. september 2018 12:51 Séð yfir Húsavík. Vísir/Arnar Halldórsson
Slysaslepping á regnbogasilungi varð úr eldisstöð N-lax að Auðbrekku í Húsavík í síðasta mánuði. Rekstraraðili tilkynnti ekki um sleppingu eins og skylt er samkvæmt lögum um fiskeldi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Matvælastofnun um málið. Við slátrun úr einu keri fyrirtækisins losnaði rist af niðurfallsröri í kerinu og fiskar komust í frárennsli stöðvarinnar sem rennur í fráveitukerfi Húsavíkur. Fyrir liggur að eldisfiskar bárust í fráveitu bæjarins. Í tilkynningu Matvælastofnunar segir að umfang slysasleppingarinnar sé óljóst en það sé ekki talið verulegt. Samkvæmt upplýsingum frá N-lax má ætla að um 300 regnbogasilungar hafi verið í kerinu þegar atvikið átti sér stað og uppgefnar sláturtölur gefi til kynna að hátt hlutfall þeirra hafi skilað sér í slátrun. Matvælastofnun segir enga hreinsun í fráveitukerfinu og því ekki hægt að útiloka að lifandi fiskur hafi borist til sjávar. Eldisfiskurinn sé ófrjór og geti ekki fjölgað sér í íslenskri náttúru. Kveikjan að rannsókn málsins var ábending til Matvælastofnunar í lok síðustu viku um slysasleppingu hjá N-lax. Við eftirlit Matvælastofnunar 4. september síðastliðinn var farið yfir atburðarás atviksins, búnað og viðbrögð fyrirtækisins. Viðbrögð fyrirtækisins voru ekki samkvæmt skráðu verklagi þess. Jafnframt var Fiskistofu ekki tilkynnt um sleppinguna eins og lög kveða á um. Matvælastofnun tilkynnti Fiskistofu um málið og er það til áframhaldandi skoðunar.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira