Lífið

Sjáðu þjóðsöngsklúður KSÍ

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðna Th fannst atvikið greinilega mjög fyndið en þessi mynd náðist af honum akkúrat þegar mistökin áttu sér stað.
Guðna Th fannst atvikið greinilega mjög fyndið en þessi mynd náðist af honum akkúrat þegar mistökin áttu sér stað. vísir/vilhelm
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tapaði fyrir Þjóðverjum í undankeppni HM 2019 í knattspyrnu á Laugardalsvelli með tveimur mörkum gegn engu á laugardaginn. Þrátt fyrir úrslitin eygir Ísland enn von um að komast á HM í Frakklandi á næsta ári.

Umgjörðin um leikinn var með besta móti og var sett áhorfendamet á kvennalandsleik á Laugardalsvelli en 9636 horfðu á leikinn úr stúkunni og uppselt var á leikinn.

Þrátt fyrir góða umgjörð vakti eitt atvik fyrir leik athygli. Eftir að spilun þjóðsöngs Þýskalands lauk var óvenju löng bið eftir að þjóðsöngur Íslands, Lofsöngur Matthíasar Jochumssonar, hæfist. Í framhaldinu heyrðust hljóð sem vallargestir og sjónvarpsáhorfendur þekkja úr Windows stýrikerfi Microsoft. Leikmenn og áhorfendur brostu ýmist eða skelltu upp úr.

Allt í einu heyrðist svo í laginu sem var þá löngu hafið. Aftur heyrðist bjölluhljóð Microsoft og var uppákoman hin vandræðalegasta.

Heyra mátti mistökin í útsendingu Stöðvar 2 Sport eins og sjá má hér að neðan.


Tengdar fréttir

Tölvukerfið stríddi KSÍ við spilun þjóðsöngsins

Íslenska landsliðið í knattspyrnu tapaði eins og alþjóð veit fyrir Þjóðverjum í undankeppni HM 2019.Þrátt fyrir góða umgjörð vakti eitt atvik fyrir leik athygli. Eftir að spilun þjóðsöngs Þýskalands lauk og Lofsöngur Matthíasar Jochumssonar var í þann mund að hefjast heyrðust hljóð sem vallargestir og sjónvarpsáhorfendur þekkja úr Windows stýrikerfi Microsoft.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.