Orsök sprengingar ekki fundin en lögreglan er með kenningu Birgir Olgeirsson skrifar 2. október 2018 14:03 Frá vettvangi sprengingarinnar í Kópavogi. Vísir/Elísabet Inga
Lögreglan hefur enn ekki fundið út hvað olli sprengingu í bílskúr í Kópavogi síðastliðinn laugardagsmorgun. Upp úr klukkan ellefu á laugardagsmorgun barst slökkviliði höfuðborgarsvæðisins tilkynning um sprengingu í bílskúr sem stendur við einbýlishús á Þinghólsbraut. Þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn logaði eldurinn í bílskúrnum og sömuleiðis í kjallaranum, sem tók þó skamma stund að slökkva. Til marks um kraftinn, þegar sprengingin varð, þá þeyttust allar hurðir af bílskúrnum og varð tjón á húsi og innanstokksmunum mikið. Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri í Kópavogi, segir lögreglu ekki vera búna að finna út hvað olli sprengingunni. Lögreglan sé þó með kenningu um hvað gerðist. Við skoðun á bílskúrnum fannst gaskútur á efri hæðinni sem var ósprunginn. Telur lögregla möguleika á því að kúturinn hafi lekið gasi í einhvern tíma. Frystikista eða kæliskápur hefði svo geta gefið frá sér neista sem var nægjanlegur til að valda þessari miklu sprengingu sökum gaslekans. Eins og áður segir er þó ekki búið að finna orsök sprengingarinnar og er lögregla enn með málið til rannsóknar.
Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira