Jón Rúnar: Væri nær að þetta fólk tæki sig til og sinnti því sem það hefur vit á Anton Ingi Leifsson skrifar 1. október 2018 20:30
FH lauk keppni í Pepsí deild karla í 5.sæti á dögunum. Það þýðir að liðið spilar ekki í Evrópukeppninni á næsta tímabili. Vonbrigði segir formaður knattspyrnudeildar FH, Jón Rúnar Halldórsson. „Við erum ekki þar sem við ætluðum að vera og það er hægt að kalla það vonbrigði. Það eru að sjálfsögðu vonbrigði er maður nær ekki þeim árangri sem maður ætlaði sér að vera á,” sagði Jón Rúnar í samtali við Ríkharð Óskar Guðnason í kvöldfréttum Stöðvar 2. „Þetta er niðurstaðan og við hér erum byrjaðir að vinna út frá því,” en FH fer ekki í neinn niðurskurð þrátt fyrir að hafa misst af Evrópukeppni þetta tímabilið: „Við höldum áfram þeirri stefnu sem við hefum keyrt hingað til; að vera á toppnum. Við erum á toppnum þó að við séum ekki í Evrópu. Það er enginn dauði hér, enginn meitt sig, enginn slys og við ætlum að vera í Evrópu á þar næsta ári.” Ólafur Kristjánsson tók við FH fyrir tímabilið og hann verður áfram við stjórnvölinn í Kaplakrika. Jón er ánægður með störf FH-ingsins uppalda. „Auðvitað geturu klínt einhverju á hann hér og þar en heilt yfir þá erum við sáttir. Við vissum það að við værum að fara inn í breytingar og við töldum að þær tæku skemmri tíma en þær gerðu.” „Það er bara svona með hlutina að stundum seinkar þeim útaf einhverju. Hér stöndum við og ég held að menn hafi séð það hvað koma skal. Við stóðum okkur vel á endanum.” Einhversstaðar hefur verið rætt og ritað um slæma fjárhagsstöðu FH en Jón Rúnar segir þá umræðu á algjöurm villigötum. „Það er fullt af fólki sem tjáir sig mikið um okkar fjárhagsmál. Fæst af því hefur hugmynd um það hvað það er að tala um. Flest af því sem tala eru út í skurði með þetta. Það væri nær að þetta fólk tæki sig nú til og sinnti því sem það hefur vit á,” sagði Jón Rúnar að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Fleiri fréttir Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjá meira