Enski boltinn

Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi

Andri Broddason skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen er búinn að vera duglegur að skora fyrir bæði landslið og félagslið.
Andri Lucas Guðjohnsen er búinn að vera duglegur að skora fyrir bæði landslið og félagslið. Anton/Vísir

Andri Lucas Guðjohnsen hélt áfram að skora fyrir Blackburn þegar liðið fékk Cardiff í heimsókn í ensku B-deildinni í fótbolta. Mark Andra Lucasar reyndist mikilvægt þar sem Blackburn vann leikinn 2-1.

Á 28. mínútu leiksins datt boltinn fyrir Andra Lucas inni í teig Cardiff sem var ekki lengi að hugsa sig um. Hann var í litlu jafnvægi en náði að koma tánni í boltann og fram hjá Nathan Trott sem stóð í marki Cardiff.

Klippa: Mark Andra Lucasar gegn Cardiff

Hjörvar Hafliðason og félagar í DocZone fylgdust með leik Andra Lucasar og fögnuðu vel og innilega þegar hann kom boltanum í markið. Andri Lucas er búinn að vera heitur fyrir bæði landslið og félagslið og nær vonandi að halda því gengi áfram.

Tíu mínútum eftir að Andri Lucas skoraði tvöfaldaði Todd Cantwell forystu Blackburn. Liðið var í góðri forystu en Cardiff náði að minnka muninn snemma í seinni hálfleik og ætlaði liðið að gera sig líklegt til þess að jafna metin.

Það tókst þó ekki og náði Blackburn að sigla sigrinum heim. Blackburn situr í tólfta sæti ensku B-deildarinnar með tólf stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×