Skutu 25 skotum að Eric Torell Atli Ísleifsson skrifar 19. október 2018 13:45 Mál Eric Torell vakti mikla athygli í byrjun ágústmánaðar. Fjölskylda Eric Torell
Þrír lögreglumenn í Stokkhólmi skutu alls 25 skotum að Eric Torell, tvítugum manni með Downs-heilkenni, sem lést af sárum sínum að kvöldi 2. ágúst síðastliðinn.Expressen greinir frá því að þrjú skotanna hafi hæft Torell og er talið að skot sem hæfði hann í bakið hafi dregið hann til dauða. Lögmaður aðstandenda Torell staðfestir fréttirnar í samtali við blaðið. Annað hinna skotanna hafnaði einnig í baki mannsins og hitt í maga. Málið vakti mikla athygli í Svíþjóð og víðar, en Torell hafði strokið að heiman og hélt á leikfangabyssu þegar lögreglumennirnir skutu að honum við Norrbackagatan í hverfinu Vasastan. Lögreglumennirnir fullyrða að þeir hafi skotið í sjálfsvörn og að hegðun Torell hafi verið „ógnandi“. Tveir lögreglumannanna sem skutu að Torell voru nýútskrifaðir úr lögregluskóla og hafði annar þeirra starfað innan lögreglunnar í um mánuð. Þriðji lögreglumaðurinn hafði margra ára reynslu. Þeir starfa enn innan lögreglunnar, en viku eftir atvikið voru þeir teknir úr sýnilegri gæslu. Rannsókn stendur enn yfir hvort mennirnir hafi gerst brotlegir í starfi.
Norðurlönd Tengdar fréttir Maðurinn hélt á leikfangabyssu þegar hann var skotinn til bana Lögreglumennirnir þrír segjast hafa talið leikfangabyssuna vera hríðskotabyssu. 3. ágúst 2018 07:02 Lögregla í Stokkhólmi skaut mann með Downs-heilkenni til bana Þrír lögreglumenn í Stokkhólmi skutu í nótt tvítugan mann með leikfangabyssu í hönd til bana í hverfinu Vasastan. 2. ágúst 2018 14:57 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Sjá meira
Maðurinn hélt á leikfangabyssu þegar hann var skotinn til bana Lögreglumennirnir þrír segjast hafa talið leikfangabyssuna vera hríðskotabyssu. 3. ágúst 2018 07:02
Lögregla í Stokkhólmi skaut mann með Downs-heilkenni til bana Þrír lögreglumenn í Stokkhólmi skutu í nótt tvítugan mann með leikfangabyssu í hönd til bana í hverfinu Vasastan. 2. ágúst 2018 14:57