Formaður finnskra Græningja hættir vegna glímu sinnar við þunglyndi Atli Ísleifsson skrifar 24. október 2018 11:29 Tuoko Aalto var kjörinn formaður finnskra Græningja í júní 2017. Mynd/Vijreät
Formaður finnskra Græningja hefur ákveðið að láta af embætti eftir að hafa verið í veikindaleyfi í nokkurn tíma. YLE greinir frá þessu.Touko Aalto greindi frá því í færslu á Facebook í morgun að glíma hans við þunglyndi hafi gert hann óvinnufæran og að flokkurinn þurfi nýjan leiðtoga. Hann þurfi lengri tíma til að ná heilsu og að flokkurinn þurfi annan til að leiða flokkinn í kosningum. „Ákvörðunin var ekki létt, en sú eina rétta í stöðunni. Heilsu minnar vegna get ég ekki þjónað liði mínu. Ég lagðist í þunglyndi fyrir ári síðan. Ég gerði mitt besta en sjúkdómurinn og þreytan hafa gert mig óvinnufæran,“ segir Aalto. Aalto fór í veikindaleyfi í september síðastliðinn og hafa fjórir deilt formennskunni í flokknum í fjarveru hans.Kosningar í apríl Touko Aalto var kjörinn formaður Græningja í júní 2017, en fylgi flokksins í skoðanakönnunum hefur dalað að undanförnu. Græningjar munu kjósa sér nýjan formann í byrjun nóvembermánaðar, en þingkosningar fara næst fram í Finnlandi í apríl á næsta ári. Græningjar eru með fimmtán fulltrúa á finnska þinginu og eru í stjórnarandstöðu. Hinn 34 ára Aalto tók sæti á þinginu árið 2015.
Finnland Norðurlönd Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Sjá meira