Rússneskir tölvuþrjótar virðast hafa komist yfir og boðið til sölu einkaskilaboð 81.000 Facebook-notenda. BBC greindi frá málinu í gær og sagði að Rússarnir héldu því fram að í heild hefðu skilaboð 120 milljóna notenda verið til sölu. Þá tölu dró miðillinn hins vegar í efa.
Flestir notendanna eru frá Rússlandi og Úkraínu en þó er einhverja að finna í gögnunum sem eru frá Bretlandi, Bandaríkjunum, Brasilíu og víðar. Skilaboð hvers notanda voru seld á um tíu krónur íslenskar en síðan var tekin niður eftir að BBC setti sig í samband við tölvuþrjótana.
Auglýsing um að hægt væri að kaupa þessi gögn birtist fyrst á enskumælandi spjallborði í september þegar notandi sem kallaði sig FBSaler sagðist búa yfir skilaboðum 120 milljóna Facebook-notenda. BBC fékk netöryggisfyrirtækið Digital Shadows til að skoða þessa staðhæfingu og komst fyrirtækið að því að skilaboðum 81.000 notenda hefði verið stolið og að einnig hefði verið hægt að stela skilaboðum 176.000 notenda til viðbótar.
Að sögn BBC setti miðillinn sig í samband við seljandann og sagðist hafa áhuga á að kaupa skilaboð tveggja milljóna notenda, spurði hvort málið tengdist annaðhvort Cambridge Analytica hneykslinu eða öryggisbresti sem greint var frá í september þegar milljónir aðganga voru í raun opnar tölvuþrjótum. Sölumaður undir nafninu John Smith svaraði og sagði málin ótengd. Þá sagði hann einnig að salan tengdist ekki rússneskum yfirvöldum eða nettröllabúum þeirra.
Guy Rosen, stjórnandi hjá Facebook, sagði í gær að ekki hefði verið brotist inn í tölvukerfi samfélagsmiðilsins. Hins vegar væri viðbótum við netvafra um að kenna. Fyrirtækið hefði því látið vafraframleiðendur vita af málinu til þess að tryggja að viðbæturnar væru teknar úr viðbótaverslunum vafranna.
Enn eitt hneykslið hjá Facebook komið upp
Þórgnýr Einar Albertsson skrifar

Mest lesið

Minni sala í skugga slæmra efnahagshorfa
Viðskipti erlent


Engar viðræður fyrr en Trump fellir niður tolla
Viðskipti erlent

Syndis kaupir Ísskóga
Viðskipti innlent

Segja afkomuna ásættanlega þrátt fyrir tap
Viðskipti innlent


Sekta TikTok um tæpa áttatíu milljarða
Viðskipti erlent

Mikill samdráttur á pöntunum til kínverskra verksmiðja
Viðskipti erlent

„Þetta er ömurleg staða“
Viðskipti innlent

Amazon í samkeppni við SpaceX í geimnum
Viðskipti erlent