Tíu mánaða gömul stúlka og móðir hennar drepnar af birni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. nóvember 2018 17:04 Mæðgurnar Adele og Valérie.
Tíu mánaða gömul stúlka, Adele Roesholt, og móðir hennar, Valérie Théoret, voru drepnar síðastliðinn mánudag af grábirni þar sem þær dvöldu í afskekktum kofa í héraðinu Yukon í norðvesturhluta Kanada. Eiginmaður Théoret og faðir Adele, Norðmaðurinn Gjermund Roesholt, fann konu sína og dóttur dánar þegar hann kom til baka í kofann síðdegis á mánudag en hann mætti grábirninum skammt frá kofanum. Roesholt tókst að skjóta björninn og drepa hann en þegar hann kom að kofanum fann hann líkin af Théoret og Adele fyrir utan. Théoret var í fæðingarorlofi og dvöldu þau Roesholt, sem er veiðimaður, í kofanum ásamt dóttur sinni. Roesholt var á veiðum þegar björninn réðst á mæðgurnar með þessum skelfilegu afleiðingum. Svæðið þar sem fjölskyldan dvaldi er við Einarson-vatn í Yukon og mjög afskekkt. Roesholt notaðist við neyðarsendi til að tilkynna um árás björnsins. Hann náði bæði sambandi við vini sína sem og við næsta þorp við kofann þar sem búa um 200 manns.
Kanada Norður-Ameríka Norðurlönd Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Sjá meira