Jónas frá Hriflu hreinsar til Sögur útgáfa kynnir 8. desember 2018 09:00 Davíð Logi Sigurðsson, sagnfræðingur grúskaði í áður óþekktum gögnum við vinnslu bókarinnar.
Davíð Logi Sigurðsson, sagnfræðingur, fjallar í bók sinni Ærumissir, um dramatíska atburði sem urðu í íslenskri pólitík árið 1927. Bókin segir sögu Einars M. Jónassonar, sýslumanns vestur á fjörðum, sem Jónas frá Hriflu vék úr embætti með nokkrum látum. Við vinnslu bókarinnar studdist Davíð meðal annars við heimildir sem ekki höfðu komið fram áður.„Það má segja að ég hafi átt „Eureka móment“ sitjandi einn þarna inni á skjalasafninu enda draumur hvers sagnfræðings að komast í bunka af skjölum sem ekki hafa komið fyrir sjónir annarra,“ segir Davíð. „Það var mjög skemmtilegt að vinna þessa bók. Annarsvegar segja sögu þessa sýslumanns sem lendir í aðgerðum Jónasar og hins vegar að varpa ljósi á hið breiða baksvið pólitíkur þessara ára, sem var nokkuð hörð." „Þegar Jónas frá Hriflu kemst til valda vill hann hreinsa duglega til. Honum þykir embættismannakerfið fúið og í því að finna allt of marga íhaldsmenn, sem honum er meinilla við. Hreinsunaraðgerðirnar hefjast á sýslumanninum fyrir vestan. Sá neitar að víkja og úr verður mikið mál. Inn í aðgerðir Jónasar blandast síðan ýmsar persónur sem segja má að hafi síðar orðið áhrifamenn í íslensku samfélagi, auk Jónasar sjálfs. Þetta eru menn eins og Stefán Jóhann Stefánsson, ungur lögfræðingur í Reykjavík, sem síðar varð formaður Alþýðuflokksins og bæði forsætis- og utanríkisráðherra og Hermann Jónasson, sem síðar varð forsætisráðherra.“ Spurður hvort spegla megi nútíma pólitík í sögunni og örlögum Einars vill Davíð sem minnst um það segja. „Ekkert er svo sem nýtt undir sólinni og stundum er eins og sagan endurtaki sig. Þar fyrir utan var Jónas frá Hriflu sjálfur afar umdeildur og gegnum tíðina hefur það verið þekktur leikur að benda á líkindi einhverra stjórnmálamanna við hann. En það læt ég aðra um.“ Ærumissir er þriðja bók Davíðs. Áður hafa komið út bækurnar Velkominn til Bagdad og Ljósin á Dettifossi. Sögur útgáfa gefa Ærumissi út.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Sögur útgáfu.
Bókmenntir Menning Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Fleiri fréttir Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira