Haukar fá tvo nýja leikmenn: Öflugur Bandaríkjamaður og Þjóðverji Anton Ingi Leifsson skrifar 28. desember 2018 18:15 Woods í leik með Missouri háskólanum þar sem hann lék áður. vísir/getty
Haukar í Dominos-deild karla hafa fengið liðstyrk því Russell Woods hefur skrifað undir samning út tímabilið en Haukarnir tilkynntu þetta á vef sínum í gær. Woods hefur verið síðustu tvö ár í Tékklandi og spilað þar með liðunum Ostrava og Svitavy en Svitavy er eitt besta liðið þar í landi. Woods spilaði síðara árið með þeim. Hann hafði spilað sjö leiki af fimmtán í deildinni er hann ákveð að söðla um og semja við Hauka en hann var að meðaltali með 7,4 stig í leik og fjögur fráköst. Hann er öflugur í teignum. „Lið Hauka er búið að styrkjast töluvert inní teig uppá síðkastið en Kristjan Leifur er að byrja að æfa aftur,“ segir á heimasíðu Hauka en Woods kemur í stað Marques Oliver. Haukarnir skiptu einnig um Evrópumann en þeir tilkynntu á Þorláksmessu að þeir höfðu sagt upp samningunm við Króatann Matic Matek. Þeir fengu Þjóðverjann Ori Garmizo í staðinn. Haukar eru, eins og önnur lið deildarinnar, í jólafríi en liðið mætir Val í fyrsta leiknum á nýju ári er liðin leiða saman hesta sína sunnudaginn sjötta janúar. Liðið er í níunda sæti deildarinnar með átta stig. Þeir rauðklæddu eru fjórum stigum frá fallsæti en með jafn mörg stig og ÍR sem eru í síðasta úrslitakeppnissætinu á betri innbyrðis viðureign.
Dominos-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik - Stjarnan | Ná Blikar að halda toppsætinu? Fótbolti Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira