Óþægindi í leggöngum algengt vandamál Florealis kynnir 10. janúar 2019 08:30 Óþægindi í leggöngum eru mjög algengt vandamál og geta haft neikvæð áhrif á daglegt líf. Nordic photos/getty
Liljonia frá Florealis er lækningavara sem vinnur gegn óþægindum og sýkingum í leggöngum, en slík vandamál eru mjög algeng meðal kvenna.„Langflestar konur upplifa óþægindi í leggöngum á einhverjum tímapunkti. Oftast eru þetta væg óþægindi en geta engu að síður verið mjög hvimleið og haldið aftur af konum,“ Segir Sandra Mjöll, vörustjóri Florealis og doktor í líf- og læknavísindum. Hún segir ástæður óþægindanna geti verið margvíslegar, ekki sé alltaf um sveppasýkingu að ræða. „Kláði, sviði og önnur óþægindi koma líka fram þegar náttúruleg flóra fer úr jafnvægi. Það getur gerst þegar breyting verður á sýrustigi, til dæmis í tengslum við blæðingar, í kjölfar inntöku sýklalyfja og líka þegar konan er undir miklu álagi,” útskýrir Sandra Mjöll.Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch, vörustjóri Florealis og doktor í líf- og læknavísindum.Leifur WilbergÓþægindin draga úr lífsgæðum kvenna„Óþægindi í leggöngum eru mjög algengt vandamál og geta haft neikvæð áhrif á daglegt líf. Konur hika við að fara í sund og stanslaus óþægindi draga auðvitað líka úr löngun til að stunda kynlíf. Sumar konur finna einnig fyrir sviða eða ertingu eftir kynlíf en sýrustigið í leggöngunum er mun lægra en sýrustig sæðisvökva. Það getur leitt til þess að ójafnvægi verður á náttúrulegri flóru með tilheyrandi óþægindum,” Segir Sandra. „Við hjá Florealis leggjum mikinn metnað í að koma til móts við konur með vörum sem taka mið af þeirra þörfum.“Einstök samsetning náttúrulegra efnaLiljonia er lækningavara sem inniheldur náttúrleg efni. Þetta eru lítil mjúk hylki sem stungið er upp í leggöngin. Hylkin innihalda hýalúrónsýru sem gefur raka, aloe vera sem hefur græðandi áhrif og veitir einnig raka og svo sýkladrepandi efni sem kallast TIAB™ en það er efnasamband með staðbundna virkni. Liljonia hemur sviða og kláða í leggöngunum, vinnur á vægum sýkingum og stuðlar að jafnvægi í náttúrulegri flóru legganga. „Þessi einstaka samsetning er því góð vörn gegn vægum sýkingum og byggir upp heilbrigða slímhúð á sama tíma en heilbrigð húð er mikilvægasta vörn líkamans gegn sýkingum,“ útskýrir Sandra Mjöll. „Það er best að nota Liljonia á kvöldin áður en lagst er til svefns. Mælt er með því að nota eitt hylki á dag í viku til að ná sem bestum árangri.“Liljonia frá Florealis var ein vinsælasta varan á Lyfja.is á síðasta ári.Ein vinsælasta varan á markaðnum„Hylkin eru afar þægileg í notkun, þau eru lítil og auðvelt að koma þeim fyrir í leggöngunum. Enda var Liljonia fimmta vinsælasta varan á Lyfja.is á síðasta ári og er á hraðri uppleið,“ segir Sandra. ,,Það er ekki eðlilegt að finna til óþæginda í leggöngunum eða á svæðinu þar í kring. Þetta er viðkvæmt svæði sem er undir stanslausu áreiti og fer í gegnum breytingar samfara tíðahringnum. Það er því mikilvægt að hlusta á líkamann og bregðast við þegar hann segir manni eitthvað. Það eru til lausnir sem draga úr og fyrirbyggja svona óþægindi. Það ætti engin kona að þurfa að þjást út af þessu.”Þessi kynning er unnin í samstarfi við Florealis
Heilsa Mest lesið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Meghan snýr aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Lífið Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lífið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Lífið Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Lífið samstarf Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Lífið Etur kappi við Obama og Reynolds Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Myndaveisla: Bylgjulestin kvaddi sumarið á Flúðum Súrdeigsbrauðdrottningin breytti pítsadeigi í þriggja rétta grillveislu Ekki ofpeppast í áfenginu, plastpoka á táslurnar og forðast tjörnina Optical Studio með vinsælan Pop Up markað með allt að 70% afslætti Bylgjulestin brunar á Flúðir Í festival gír með Icewear Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Myndaveisla: Götubitinn í Hljómskálagarðinum Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið Uppskriftir: Axel bauð í þriggja rétta grillveislu Vissir þú að JYSK selur bleikan útilegustól? Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Myndir frá Selfossi þar sem Bylgjulestin var í beinni Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Sjá meira